Bandaríkin gagnrýndu árásir Úkraínu á Rússland

„Ansi heimsku­legt,“ sagði varn­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands um gagn­rýni Banda­ríkj­anna.

Gagnrýni í Brussel
Gagnrýni í Brussel Elbridge Colby, aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, gagn­rýndi árásir Úkraínu langt inni í Rúss­landi á fundi stuðn­ings­ríkja Úkraínu í Brussel. Mynd: NICOLAS TUCAT / AFP

Elbridge Colby, hátt­settur emb­ætt­is­maður í banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu, gagn­rýndi í gær árásir Úkraínu langt inni í Rúss­landi. Volodimír Selenskí for­seti hvatti á sama tíma stuðn­ings­ríki Úkraínu til að senda loft­varna­búnað án tafar.

„Okkar mat er að þessar árásir hafi hvorki skilað árangri við að binda enda á stríðið né stuðlað að því að hægja á sókn Rússa á víg­lín­unni,“ sagði Colby, aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, á fundi stuðn­ings­ríkja Úkraínu í Brussel.

„Slíkar árásir, einkum þegar þær bein­ast að borg­ara­legum innviðum á borð við Wildberries, hafa lík­lega fremur styrkt bar­áttu­vilja rúss­nesks almenn­ings og vilja stjórn­valda í Kreml til að herða átökin,“ sagði hann. Þar vís­aði hann til rúss­nesks stór­fyr­ir­tækis í net­verslun sem Úkraína hefur beint árás að.

Colby sagði að stuðn­ingur við Úkraínu ætti að bein­ast að því að styrkja víg­lín­una, þar sem Úkra­ínu­mönnum hefur jafn­vel tek­ist að hrekja Rússa til baka á sumum svæðum, og að árásum á birgða­leiðir Rússa …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár