Barack Obama: Við erum öll innflytjendur - Erum of fljót að gleyma

„Við erum öll innflytjendur. Það er kjarninn í okkar,“ sagði Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, í ræðu sinni við athöfn, þar sem innflytjendur í Banda­ríkjunum urðu formlega bandarískir ríkis­borgarar, samtals frá 25 löndum.

Obama gerði innflytjendamál, og vanda flótta­manna frá stríðs­hrjáðum svæðum í Sýrlandi, Írak og Afganistan, sérstak­lega að umtals­efni. Sagði hann Banda­ríkin vera innflytjenda­land, og að það væri byggt af upp duglegu fólki sem hefðu flúið aðstæður heima fyrir og komið sér fyrir í Banda­ríkjunum. „Við erum of fljót að gleyma,“ sagði hann og lagði áherslu á að kynslóðir yrðu alltaf að huga að uppruna sínum, einkum og sér í lagi þegar fólk í mikilli neyð vildi koma sér fyrir í Banda­ríkjunum.

Það mætti ekki ala á óttanum um „okkur“ og „þau“, eins og oft gerðist í Banda­ríkjunum þegar múslimar væru annars vegar. „Við vorum einu sinni þau. Við skulum ekki gleyma því,“ sagði Obama.

Obama sagði enn fremur að tölur sýndu að innflytjendur væru áhrifa­miklir í frumkvöðla­starfsemi í Banda­ríkjunum, og gengdu mikilvægu hlutverki í opinberri þjónustu. „Innflytjendur kenna börnunum okkar[...]Þeir eru hluti af Banda­ríkjunum,“ sagði Obama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár