Salan á Íslandsbanka „algjör hörmung“

Þing­maður Pírata telur að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra muni sleppa „örugg­lega alveg við að bera nokkra ábyrgð á þessu risa­vaxna klúðri sem sala Íslands­banka er búin að vera fyrir rík­is­sjóð“.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata gagn­rýndi sölu Íslands­banka í síð­ustu viku, bæði í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu og í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi.

Hann hóf mál sitt á þingi með því að benda á að nú stæði til hjá stjórn­völdum að halda áfram að selja hlut sinn í bank­anum. Ríkið seldi 35 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka í júní í fyrra og hluta­bréf í bank­anum voru í kjöl­farið skráð á mark­að. Kjarninn greindi frá því í jan­úar síð­ast­liðnum að Banka­sýsla rík­is­ins hefði lagt fram til­lögu til Bjarna Bene­dikts­son­ar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að stofn­unin fengi heim­ild til að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­sent hlut íslenskra rík­is­ins í Íslands­banka. Stefnt er að því að salan fari fram í nokkrum áföngum en heim­ildin á að gilda í tvö ár, eða út árið 2023.

Björn Leví nefndi í ræðu sinni að á fundi fjár­laga­nefndar í vik­unni hefðu Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, Jón Þór Sturlu­son, deild­ar­for­seti við­skipta­deildar Háskól­ans í Reykja­vík, og Jón Dan­í­els­son, pró­fessor í hag­fræði við London School of Economics, mætt og minnst á ýmis atriði sem vert væri að skoða – og sér­stak­lega með til­liti til spurn­inga vegna fyrri söl­unnar, þ.e. um það hvað væri eðli­legt fyr­ir­komu­lag í svona frumút­boði.

Ríkissjóður „bókstaflega að gefa þessa eign til annarra“

„Það er dálítið mik­il­vægt að hafa þetta í huga og skilja þetta. Það er eðli­legt að það sé á pínu­litlu und­ir­verði þegar verið er að selja. Markmið þess sem er að selja, til dæmis eins og Íslands­banka, er að and­virði eign­ar­innar auk­ist í kjöl­farið. Það er yfir­lýst mark­mið. Það er vilj­andi reynt að hafa það þannig. Maður spyr hversu mikið væri eðli­legt, þ.e. áður en maður fer að klóra sér í hausnum yfir því að hækk­unin sé orðin of mikil. Ef ég væri til dæmis að selja bíl­inn minn og myndi selja hann á milljón – hann er reyndar alger drusla og myndi aldrei að selj­ast á því verði – og ein­hver myndi kaupa hann á milljón og selja hann strax aftur á 1,6 millj­ónir, myndi ég þá ekki hugsa: Ég klúðr­aði þessu, ég hefði getað selt bíl­inn minn á miklu hærra verði?

Þannig er þetta nákvæm­lega með sölu Íslands­banka. Hann er kom­inn í 60 pró­sent hærra verð heldur en hann var þegar hann var seldur. Umsagn­ar­að­ilar sem komu í fjár­laga­nefnd og fjöll­uðu um þetta mið­uðu við kannski 10 pró­sent hækkun, þá væru allir ánægðir, bæði kaup­endur og selj­endur. Ekki 60 pró­sent hækkun. Þá erum við, rík­is­sjóður, sam­eign okkar allra hérna, bók­staf­lega að gefa þessa eign til ann­arra,“ sagði þing­mað­ur­inn á Alþingi í vik­unni.

Einstaklega heppilegt fyrir þau sem keyptu

Björn Leví sagði í grein í Morg­un­blað­inu í vik­unni að salan væri meiri háttar mál, sér­stak­lega eftir „klúðrið“ síð­ast.

„Það er nefni­lega mjög merki­legt að öll gögn sem við fáum frá fjár­mála­ráðu­neyti, banka­sýslu og álíka aðilum segja okkur að fyrsta útboð Íslands­banka hafi heppn­ast mjög vel – og útskýra það bara með því að það hafi verið mik­ill áhugi og að margir ein­stak­lingar hafi keypt hlut í bank­anum. Það var ein­stak­lega heppi­legt fyrir þau sem keyptu, auð­vitað, því verðið hefur hækkað ansi mikið síðan útboðið fór fram eða um 60 pró­sent eða svo. Það er ekki annað en hægt að kalla það góð kaup. En mitt verk­efni er að skoða hvernig bank­inn var seldur. Ekki hvernig hann var keyptur (það er sér­stakt verk­efni út af fyrir sig),“ skrif­aði hann.

Þing­mað­ur­inn sagði að það hlyti að vera öllum aug­ljóst „að út frá sjón­ar­horni rík­is­sjóðs, okkar sam­eig­in­lega sjóðs, var þessi sala algjör hörm­ung. Samt ákvað banka­sýslan að greiða við­bót­ar­þóknun til ráð­gjafa í ljósi „góðrar nið­ur­stöðu“. Þóknun sem end­aði í tæp­lega 1,4 millj­örðum króna.“

„Því miður er verið að selja banka í stríði. Málið fær örugg­lega ekki þá athygli sem það þarf vegna þess og fjár­mála­ráð­herra sleppur örugg­lega alveg við að bera nokkra ábyrgð á þessu risa­vaxna klúðri sem sala Íslands­banka er búin að vera fyrir rík­is­sjóð. Ráðherra segir bara „vel heppnað“ nægi­lega oft þrátt fyrir að það bók­staf­lega æpi á okkur hversu mikið klúður þetta mál er,“ skrif­aði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár