Vilja að Bjarni afli víðtækra heimilda til að selja afganginn af Íslandsbanka

Banka­sýsla rík­is­ins hefur lagt fram til­lögu til Bjarna Bene­dikts­sonar um hvernig eigi að selja eft­ir­stand­andi hlut í Íslands­banka, sem er met­inn á 126 millj­arða króna. Bjarni þarf að sam­þykkja allar sölur.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fer með eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Mynd: Bára Huld Beck

Banka­sýsla rík­is­ins lagði fram í gær fram til­lögu til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að stofn­unin fái heim­ild til að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­sent hlut íslenskra rík­is­ins í Íslands­banka. Stefnt er að því að salan fari fram í nokkrum áföngum en heim­ildin á að gilda í tvö ár, eða út árið 2023.

Tillagan er í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur og fyr­ir­ætl­anir sem kynntar voru við gerð fjár­laga fyrir árið 2022.

Ríkið seldi 35 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka í júní í fyrra og hluta­bréf í bank­anum voru í kjöl­farið skráð á markað. Hver hlutur var seldur á 79 krónur og sölu­and­virðið var 55,3 millj­arðar króna. Mark­aðsvirði bank­ans hefur síðan hækkað um 65 pró­sent og mark­aðsvirði eft­ir­stand­andi eign­ar­hlutar Íslands­banka því 162 millj­arðar króna í dag.

Í minn­is­blaði sem birt hefur verið á vef Banka­sýslu rík­is­ins segir að þar sem hlutir í bank­anum séu skráðir á skipu­legum mark­aði telji Banka­sýsla rík­is­ins ein­sýnt að sala á frek­ari hlutum fari einnig fram með almennu útboði. „Aftur á móti er ljóst vegna umfangs áætl­aðrar sölu og stærðar útboða á hluta­bréfa­mörk­uðum að fram­kvæma þurfi sölu á svo stórum eign­ar­hlut í mörgum skrefum. Þar sem mark­aðs­að­stæður, sem geta breyst með skömmum fyr­ir­vara, ráða því að mestu leyti hvenær tíma­setn­ing hverrar sölu er ákveðin og sala með almennu útboði tekur afar skamman tíma, telur Banka­sýsla rík­is­ins rétt að ráð­herra afli víð­tækra heim­ilda til sölu.“

Í minn­is­blað­inu segir að til­laga stofn­un­ar­innar sé í fullu sam­ræmi við ákvæði fjár­laga fyrir árið 2022 sem þegar sé búið að sam­þykkja. „Aftur á móti verður ráð­herra upp­lýstur að fullu leyti um hverja sölu, enda þarf sam­þykki hans fyrir sölu­verði og sölu­magni í hvert skipti sem eign­ar­hlutir rík­is­ins í bank­anum eru fram­seldir til ann­arra eig­anda. Að mati stofn­un­ar­innar er ekk­ert í lögum nr. 155/2012 um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum eða lög­skýr­inga­gögnum sem stendur í vegi fyrir þess­ari til­högun.“

Mismunandi aðferðir við sölu

Banka­sýslan vill líta til fjög­urra sölu­að­ferða á eft­ir­stand­andi eign­ar­hlut í Íslands­banka. Í fyrsta lagi sölu með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi. Sala með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi fer fram á einum til tveimur dögum. Í minn­is­blað­inu segir að til að tryggja að útboð­inu ljúki á far­sælan hátt sé ákveðnum fjölda fag­fjár­festa boðið að und­ir­rita trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar við upp­haf hverrar sölu og búa þeir þar af leið­andi tíma­bundið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum. „Er þá oft­ast um að ræða fjár­festa, sem annað hvort eru þegar eig­endur í und­ir­liggj­andi félagi eða hafa gefið til kynna áhuga á að taka þátt í frek­ari sölu hluta af hálfu ráð­andi eig­anda. Þegar áhugi þeirra liggur fyrir um verð og magn er svo tekin ákvörðun af hálfu selj­anda og ráð­gjafa hans að til­kynna um almennt útboð á hlutum eftir lokun mark­aða til hæfra fjár­festa. Eftir það gefst þessum fjár­festum svo tími það sem eftir lifir dags til að skila inn áskriftum, en nið­ur­stöður úthlut­unar þurfa þó að liggja fyrir áður en mark­aðir með hlut­ina opna dag­inn eftir.“

Í öðru lagi sölu með full mark­aðs­settu útboði, en það er opin útboð til almennra fjár­festa og hæfra fjár­festa, sem tekur nokkra daga. „Banka­sýsla rík­is­ins telur að sala með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi sé einnig í fullu sam­ræmi við meg­in­reglur sölu­með­ferðar og mark­mið stofn­un­ar­innar. Aftur á móti eru mun færri dæmi um slíkar sölur á evr­ópskum hluta­bréfa­mörk­uðum und­an­farin ár, en aðferðin er vin­sælli í Banda­ríkj­unum og ann­ars staðar í heim­inum. Má segja að sala með full mark­aðs­settu útboði falli á milli sölu með frumút­boði og sölu með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi.“

Í þriðja lagi miðl­un­ar­á­ætlun, en sala sam­kvæmt henni fer yfir­leitt fram á síð­ari stigum sölu, t.d. þegar eign­ar­hlutur ráð­andi hlut­hafa liggur á nær þriðj­ungi af útistand­andi hluta­bréfum. „Fer hún þannig fram að Banka­sýsla rík­is­ins myndi gefa verð­bréfa­fyr­ir­tæki fyr­ir­mæli um að selja ákveð­inn fjölda hluta, sem t.d. mið­ast við að mark­aðnum verði ekki ofgert þannig að sala geti verið sem næst mark­aðs­verði.“

Í fjórða lagi er lagt til sölu með útgáfu skipt­an­legra skulda­bréfa.

Um sjö þús­und hafa þegar selt

Í fjár­­­festa­kynn­ing­u vegna síð­asta birta upp­gjörs Íslands­banka kom fram að hlut­hafar í Íslands­­­banka hefðu verið yfir 17 þús­und tals­ins í lok sept­em­ber. Eftir útboðið í sumar voru hlut­haf­­arnir um 24 þús­und tals­ins. Það þýðir að um sjö þús­und hafa þegar selt hlut sinn í Íslands­­­banka á þeim tíma sem liðin er frá hluta­fjár­­út­­­boð­in­u.

Sá háttur var hafður á í útboð­inu að allir sem skráðu sig fyrir einni milljón króna eða minna myndu ekki skerð­­ast ef eft­ir­­spurn yrði umfram fram­­boð. Þetta var gert til að draga sem flesta að þátt­­töku. Eft­ir­­spurnin reynd­ist níföld.

Hluta­bréf í bank­­anum hækk­­uðu um 20 pró­­sent strax á fyrsta degi eftir skrán­ingu á markað og hafa síðan hækkað jafnt og þétt.

Sá sem keypti hlut í Íslands­­­­­banka af íslenska rík­­­inu á eina milljón króna í júní gæti selt þann hlut í dag á um 1,65 millj­­ónir króna, og þar með hagn­­ast um 650 þús­und krónur á nokkrum mán­uð­­um.

Bank­inn hagn­að­ist um 7,6 millj­­arða króna á þriðja árs­fjórð­ungi 2021, sem er sá fyrsti sem leið eftir skrán­ingu hans á mark­að, og arð­­semi eigin fjár hans var 15,7 pró­­sent. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var hagn­aður Íslands­­­banka 16,6 millj­­arðar króna og arð­­semi eigin fjár hans á árs­grund­velli var 11,7 pró­­sent.

Hreinar þókn­ana­­tekjur bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins juk­ust um 20,1 pró­­sent frá sama tíma­bili í fyrra og vaxta­­tekjur hans hækk­­uðu um 1,1 pró­­sent, en þær voru 25,4 millj­­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Kostn­að­­ar­hlut­­fall bank­ans lækk­­aði úr 55,3 í 46,6 pró­­sent milli ára en stjórn­­­ar­­kostn­aður hækk­­aði, aðal­­­lega í tengslum við skrán­ingu Íslands­­­banka á mark­að, auk­ins launa­­kostn­aðar vegna kjara­­samn­ings­hækk­­ana og kostn­aðar vegna upp­­­sagna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár