„Bókstaflegt dæmi um hlutgervingu þegar konu er breytt í dekk“

Kven­réttinda­félag Íslands vekur athygli á auglýsingu í Frétta­blaðinu þar sem búið er að móta dekk í kven­líkama. Brynhildur Heiðar- og Ómars­dóttir, framkvæmda­stýra félagsins, segir að um sé að ræða dæmigerða hlut­gervingu kvenlíkams til að selja vöru.

Kven­réttinda­félag Íslands vekur athygli á auglýsingu sem birtist í Frétta­blaðinu í morgun á Facebook-síðu sinni. „Fílar þú þig sem harðkorna­dekk í dag?“ spyr félagið á Facebook.

Auglýsingin, sem er á vegum Dekkverks, sýnir dekk sem búið er að móta í kven­mannslíkama. Í samtali við Stundina segir Brynhildur Heiðar- og Ómars­dóttir, framkvæmda­stýra félagsins, að um er að ræða dæmigerða og bókstaf­lega hlut­gervingu kven­líkamans. „Þetta er klassískt og bókstaflegt dæmi um hlut­gervingu þegar konu er breytt í dekk. Ég skil ekki alveg hugsunina bak við þessa auglýsingu. Árið er 2015 og ég hélt að tími svona auglýsinga væri löngu liðinn,“ segir Brynhildur.

Framkvæmdastýra
Framkvæmda­stýra Brynhildur Heiðar- og Ómars­dóttir, framkvæmda­stýra Kven­réttinda­félags Íslands, segir að um er að ræða dæmigerða og bókstaf­lega hlut­gervingu kvenn­líkamans.

Hún bendir á að varan sem er auglýst komi líkama kvenna ekkert við. „Þetta snýst um hvernig kyn kvenna er smættað niður í hluti og svo notað í að auglýsa vöru sem tengist líkama kvenna ekki neitt. Það sem mér flaug strax í hug er hinn frægi Michelin-maður. Þá sér maður að þegar karlar eru notaðir, því Michelin-maðurinn er karlmaður og þetta er karl­líkami, þá er hann fígúra sem er gerandi í auglýsingunni. Það er ekki verið að gera út á að hann sé sexí eða fallegur. Það er ekki verið að segja: „Girnstu mig“,“ segir Brynhildur.

Hún bendir enn fremur á að öll áhersla í auglýsingunni sé á brjóst dekkja­konunnar og hún hafi ekki einu sinni haus. „Síðan sjáum við þessa auglýsingu þar sem ekki nóg með það að þetta sé kvenn­líkaminn sem er smættaður niður í dekk þá er hún algjör­lega hauslaus líka. Það vantar á hana alla útlimi og það eina sem er lagt áhersla á eru brjóst, magi, rass og læri. Það er ekki verið að nota konu sem talskonu dekkja,“ segir Brynhildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár