Netflix seilist til Kína - 6 milljarða Bandaríkjadala markaður undir

Bandaríski afþreyingar­risinn Netflix á nú í samninga­viðræðum við kínverskt fjarskipta­fyrirtæki í von um að komast til landsins með þjónustu sína. Gríðar­legir hagsmunir eru í húfi því stafræni efnisveitu­markaðurinn á netinu í Kína veltir tæplega sex milljörðum Bandaríkja­dala árlega. Frétta­miðillinn Bloomberg greinir frá málinu.

Netflix nýtur stuðnings Jack Ma, stofnanda og stjórnar­formanns Alibaba, sem er stærsta netfyrirtæki landsins, í samninga­viðræðunum ásamt öðrum væntanlegum fjár­festum. Aðspurð um tenginguna og þreifingarnar við Kína sagði talskona Netflix að fyrir­tækið stefni á að ná hnattrænni útbreiðslu í lok árs 2016.

Þurfa að lúta ritstjórnarstefnu kínverskra stjórnvalda


Spár gera ráð fyrir að eft­ir­spurn í Kína eftir afþrey­inga­efni á net­inu muni allt að því þre­fald­ast til árs­loka 2018. Samstarf við þar­lent fjar­skipta­fyr­ir­tæki er mik­il­vægt fyrir Netflix vegna strangra skil­yrða kín­verskra stjórn­valda við útgáfu leyfa til efn­isveitna á net­inu. Afþrey­ing­arris­inn leitar því eftir sam­starfs­að­ila sem hafi nú þegar tryggt sér leyfi til að bjóða upp á efni fyrir öll tæki.

Ljóst er að Netflix mun þurfa að fara eftir strangri ritskoðunar­stefnu kínverskra stjórn­valda, nái fyrir­tækið fótfestu þar í landi. Þannig þurfa kínversk stjórn­völd að fara yfir efni afþreyingar­risans, bæði gamalt og nýtt, áður en það er birt og klippa út það sem þeim þykir óæskilegt að borgarar sínir berji augum. Þetta þýðir auðvitað að töluverður dráttur mun verða á því að nýir þættir, í fram­leiðslu Netflix, komi fyrir sjónir áskrifenda efnis­veitunnar þar sem þeir þurfa áður að vera samþykktir til sýninga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár