Breski fjármálaráðherrann vill selja námslán breskra stúdenta

George Osborne, fjármála­ráðherra Bretlands, ætlar sér að ná í um 23 milljarða punda, um 3.784 milljarða íslenskra króna, með því að selja eignir hins opinbera á þessu ári. Uppi­staðan í þeim áformum er sala á námslánum sem breskir stúdentar tóku á árunum 1998 til 2012. Frá þessu er greint á vef Daily Mail.

Osborne reyndi líka að selja námslánin á síðasta kjör­tímabili, en þá stóð Vince Cable, þáverandi viðskipta­ráðherra Frjáls­lyndra demókrata, í vegi fyrir áformunum. Cable datt hins vegar af þingi í nýliðnum kosningum þar sem Íhalds­flokkurinn náði auk þess hreinum meirihluta og þarf því ekki að leita samþykkis samstarfs­flokks lengur.

Seldu gömlu námslán allt of ódýrt


Virði náms­lána­bók­ar­innar sem Osborne og Íhalds­flokk­ur­inn vill selja til að skapa tekjur fyrir breska ríkið er um tólf millj­arðar punda, um 2.500 millj­arða íslenskra króna. Kaupandi lán­anna mun þá taka yfir inn­heimtu allra náms­lána sem veitt voru á árunum 1998 til 2012, en þau eru í dag inn­heimt af rík­is­fyr­ir­tæk­inu The Student Loans Company.

Osborne hefur þegar selt námslán sem veitt voru fyrir árið 1998. Gagn­rýnendur hafa sagt að þau hafi verið seld allt of ódýrt, eða á 160 milljónir punda (33,3 milljarðar íslenskra króna), þegar nafnvirði lánanna var 890 milljónir pund (185 milljarðar króna).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár