Skrifstofuflakk Áslaugar mun kosta um milljón

Engir dagpeningar verða greiddir, Herjólfur tekinn til Vestmanna­eyja og kostnaði við starfs­aðstöðu haldið í algjöru lágmarki er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra flytur skrif­stofa sína um landið í haust.

Áslaug Arna á skrifstofu í húsnæði Rastar á Hellissandi þar sem í fyrra var opnað samvinnurými.
Áslaug Arna á skrif­stofu í hús­næði Rastar á Hell­issandi þar sem í fyrra var opnað sam­vinnu­rými. Mynd: Ráuðneytið

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, mun á næstu vikum færa skrif­stofu sína frá einum bæ í annan og bjóða íbúum á hverjum stað til spjalls. Einnig eru fyrirtækja­heimsóknir hluti af dagskránni og íbúa­fundir fyrir­hugaðir á einhverjum staðanna. Ferða­lagið hófst í Snæfellsbæ þann 18. ágúst og lýkur, í þessari fyrstu lotu, á Akranesi í lok október. Þá mun ráðherra hafa starfað á tíu stöðum á landinu. „Það var ótrúlega kraft­mikið að sitja á Hellis­sandi með Snæfells­jökul útum gluggann og sinna þaðan starfi mínu á dögunum," segir Áslaug. „Ég fékk skrif­stofu á Röstinni sem er samvinnu­rými í Snæfellsbæ og fékk einstakt tækifæri til að kynnast samfélaginu á fjöl­breyttan máta og ræða málefni ráðuneytisins.“

Ráðuneytið áætlar að kostnaður vegna verk­efnisins á þessu ári verði rúmlega ein milljón króna. Gisting er dýrasti kostnaðar­liðurinn, um 437 þúsund krónur, og kostnaður við auglýsingar í bæjar- og á samfélags­miðlum kemur þar á eftir en hann er áætlaður um 350 þúsund, án virðis­auka. Flutningur skrif­stofunnar til Ísafjarðar verður dýrastur, áætlaður um 184 þúsund krónur. Þar á eftir fylgja Akureyri (176 þús) og Múlaþing (167 þús).

Framtak Áslaugar hefur mælst vel fyrir en hugmyndin fæddist er hún var að hugsa hvernig ráðuneyti sem væri búið til árið 2022 myndi starfa. „Með þessu kynnist ég enn betur starfsemi sem tengist ráðuneytinu um allt land og fæ tækifæri til að prófa að starfa annars staðar en í Reykjavík,“ sagði ráðherrann er hún kynnti áform sín.

Frá því að nýtt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðuneyti tók til starfa í febrúar hefur það verið opið fyrir störfum óháð stað­setningu. Í því felst að starfsemi ráðuneytisins er ekki bundin við einn ákveðinn stað þrátt fyrir að aðal­starfsstöð þess sé í Reykjavík. Þannig geta starfs­menn ráðuneytisins unnið að heiman eða frá þeim stað á landinu sem best hentar hverju sinni. Ráðherrann er þar engin undan­tekning og með því að staðsetja skrif­stofu Áslaugar víðs vegar um landið telur hún gefast mikilvægt tækifæri til aukinnar tengsla­myndunar og samstarfs við háskóla, stofnanir, fyrirtæki, sveitar­félög og einstaklinga um land allt.

„Starfs­menn ráðuneytisins munu ekki fylgja ráðherra í þessu verkefni utan aðstoðar­manns en aðstoðar­maður fylgir ávallt ráðherra í ferðum bæði innan- og utanlands, hvort sem um er að ræða ferð til að flytja aðeins eitt ávarp eða lengri dvöl á borð við það verkefni sem hér um ræðir,“ segir Hrafnhildur Helga Össurar­dóttir, upplýsinga­fulltrúi ráðuneytisins, í skriflegu svari við fyrir­spurn Kjarnans um kostnað við verkefnið. Bílstjóri verður með í för á stöðum þangað sem ráðherra ferðast á bíl. Enginn aukalegur kostnaður myndast þó fyrir ráðuneytið vegna aksturs þar sem bílstjóri er á föstum launum hjá Stjórnar­ráðinu. „Dagpeningar eru ekki greiddir,“ segir Hrafnhildur Helga, heldur verður greitt eftir reikningum. Engin aðkeypt vinna er í tengslum við verkefnið.

Gert er ráð fyrir að morgun­matur sé inni­falinn í gistingu þar sem við á. Ráðherra, aðstoðar­maður og bílstjóri, þegar hann er með í för, fá hádegis- og kvöldmat greiddan eftir reikningum eftir því sem við á.

Ráðuneytið hefur mjög fáa fermetra til afnota

Misjafnt er eftir stöðum hvort skrifstofu­rými verður leigt. Stefnt er að því að nýta aðstöðu hjá undir­stofnunum ráðuneytisins eða starfs­stöðvum því tengdu eða að nýta samvinnu­rými, þekkingar­setur og/eða klasa undir skrif­stofur ráðherra. Ráðuneytið greiðir hins vegar fyrir leigu á vinnu­aðstöðu, sé þess þörf, og er nú aðeins gert ráð fyrir kostnaði við þá leigu í Mosfellsbæ. „Í þessu sambandi er ástæða til að minna á að ráðuneytið hefur ekki enn fengið eigin aðstöðu í Reykjavík en hefur afnot af rými í Arnar­hvoli,“ segir Hrafnhildur Helga. „Ekkert ráðuneyti er með jafn fáa fermetra til afnota.“

Í hverju bæjar­félagi býður ráðherra íbúum, félögum og fyrir­tækjum til viðtals auk þess sem hún er í vissum tilvikum einnig með opna fundi. Til að upplýsa um þá viðburði eru birtar auglýsingar í bæjar­blöðum og/eða á samfélags­miðlum. Áætlaður auglýsinga­kostnaður er miðaður við verð auglýsinga í svipaðri stærð í bæjar­blöðum eða á vefsíðum bæjar­miðla hvers lands­hluta fyrir sig.

Í svari Hrafnhildar minnir hún á að aðeins sé um áætlun að ræða þar sem verkefnið er stutt á veg komið og raun­kostnaður því óljós.

Áætlaður kostnaður eftir staðsetningu skrifstofa ráðherrans

Snæfellsbær, 18. ágúst: 131.495

Mosfellsbær, 29. ágúst: 92.000

Árborg, 5. september: 20.112

Hafnar­fjörður, 12. september: 48.000

Múlaþing, 22. september: 166.880

Akureyri, 28. september: 176.180

Ísafjörður, 10. október: 183.680

Reykja­nesbær, 13. október: 88.350

Vestmanna­eyjar, 20. október: 122.500

Akranes, 27. október: 31.000

Samanlagður kostnaður við ákveðna þætti allra heimsóknanna

Gisting: 436.900

Vinnu­aðstaða: 44.000

Flug/ferja: 146.240

Bílstjóri: 0

Fæði: 79.500

Auglýsingar: 353.557 (án VSK)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár