Utanríkisráðuneytið hafnar forsíðufrétt Fréttablaðsins um meint áform NATO

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins í dag sé alröng og hafnar því alfarið að svo mikið sem hug­myndir séu uppi um bygg­ingu varn­ar­mann­virkja í Gunn­ólfs­vík í norð­an­verðum Finna­firði á Langa­nesi.

Skjáskot af frétt Fréttablaðsins frá því í morgun.
Skjáskot af frétt Frétta­blaðs­ins frá því í morgun. Mynd: Fréttablaðið

Frétta­blaðið greindi frá því á for­síðu sinni í dag að Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO) hefði fal­ast eftir því að fá að byggja langan við­legu­kant norðan megin í Finna­firði á Langa­nesi og að á „bak við tjöldin“ væri utan­rík­is­ráðu­neytið í sam­skiptum við sveit­ar­stjórnar Langa­nes­byggðar um þetta efni.

Þessu hafnar utan­rík­is­ráðu­neytið alfarið í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

„Engin áform eða hug­myndir eru uppi um upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja á því svæði sem þar er til umfjöll­unar. Enn síður á sér stað und­ir­bún­ings­vinna eins og haldið er fram í frétt­inni. Engin áform eru um upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja í Finna­firði og engar beiðnir, hvorki form­legar né óform­legar, hafa verið lagðar fram af hálfu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og stað­hæf­ingar um beiðni Atl­ants­hafs­banda­lags­ins eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Fréttin er því röng,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Segja að einfalt hefði verið að svara fyrirspurnum

Í frétt Frétta­blaðs­ins sagði að engin svör hafi feng­ist við fyr­ir­spurnum um málið hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Ráðu­neytið segir að það telji í ljósi þessa rétt að taka fram að blaða­maður hafði sam­band við fjöl­miðla­full­trúa ráðu­neyt­is­ins, sem staddur var í sum­ar­fríi erlendis og að sá hafi vísað blaða­mann­inum á stað­gengil.

„Blaða­maður hafði ekki sam­band við stað­gengil eða neinn hjá ráðu­neyt­inu til þess að leita stað­fest­ingar á þeim röngu upp­lýs­ingum sem hann byggði skrif sín á. Er þetta miður þar sem ein­falt hefði verið að koma á fram­færi upp­lýs­ingum og svara fyr­ir­spurnum um málið,“ segir í yfir­lýs­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Í henni segir enn­fremur að á grund­velli varn­ar­á­ætl­ana leggji NATO „mat á þörf fyrir upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja í banda­lags­ríkjum“ og að það sé ákvörðun stjórn­valda í hverju ríki „hvort og hvaða varn­ar­mann­virki eru byggð“.

Þetta segir ráðu­neytið einnig gilda um Ísland, „þar sem íslensk stjórn­völd hafa loka­orð um alla varn­ar­tengda upp­bygg­ingu. Auk þess bætir ráðu­neytið því við að sam­ráð um upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja eig sér „ávallt stað á vett­vangi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og slíkar ákvarð­anir taka að sjálf­sögðu mið af ástandi heims­mála hverju sinni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár