Ísland eftirbátur Norðurlanda í stafrænni stjórnsýslu

Stafræn þjón­usta hins opin­bera á Íslandi er slök­ust allra Norð­ur­landa, sam­kvæmt nýrri skýrslu Sam­ein­uðu Þjóðanna.

Ísland er eft­ir­bátur Norð­ur­landa þegar kemur að staf­rænni þjón­ustu hins opin­bera. Þetta eru nið­ur­stöður skýrslu sem hag-og félags­mála­deild Sam­ein­uðu Þjóðanna birtu nú á dög­unum.

Skýrslan skoðar staf­ræna stjórn­sýslu í 193 löndum, en mark­mið hennar er að meta getu land­anna til að takast á við alheims­mark­mið Sam­ein­uðu Þjóðanna árið 2030. Þetta er í tíunda skiptið sem sam­tökin birta við­líka skýrslu og er hún byggð á nokkrum vísi­tölum sem bera saman þróun land­anna í ýmsum mála­flokkum staf­rænnar stjórn­sýslu.

75. sætið af 193

Einn þess­ara mála­flokka mælir þátt­töku borg­ara í opin­berri vef­þjón­ustu sem snýr ákvarð­ana­töku rík­is­ins. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar gefa til kynna að Ísland sé eft­ir­bátur margra þjóða þegar kemur að því, en landið er í 75. sæti á heims­vísu. Hin Norð­ur­löndin eru öll mun ofar á list­anum, en Danmörk og Finnland deila efsta sæti hans. Noregur er svo í ell­efta sæti list­ans og Svíþjóð í því nítj­ánda.

Neðst allra Norðurlanda

Einnig var vísi­tala fyrir þróun í raf­rænni stjórn­sýslu milli landa birt í skýrsl­unni. Eftir sem áður var Ísland þar eft­ir­bátur ann­arra Norð­ur­landa, en þó nokkuð ofar­lega miðað við önnur lönd í nítj­ánda sæti. Helstu þætt­irnir sem drógu Ísland upp í vísi­töl­unni var helst há ein­kunn á gæði mannauðs­ins, en aðrir þættir skor­uðu ekki jafn­hátt.

Samkvæmt skýrsl­unni er staða Íslands í vísi­töl­unni til marks um að tækni­þróun í raf­rænni stjórn­sýslu sé á betri stað en þjón­usta þeirra gefur til kynna. SÞ nefnir þar sér­stak­lega Ísland í því til­liti ásamt Mónakó og Hvíta-Rúss­landi, en fjar­skipta­inn­viðir og mannauður land­anna þriggja hefur þró­ast hraðar en vef­þjón­ustan.

Ráð­gjafa­stofan Fúnksjón gerði nið­ur­stöður skýrsl­unnar að umtals­efni á Facebook-síðu sinni fyrr í vik­unni, en sam­kvæmt þeim hefur Ísland farið upp um átta sæti frá könnun sam­tak­anna fyrir tveimur árum síðan. Fúnksjón telur einnig að nýleg fyr­ir­heit rík­is­stjórn­ar­innar um þennan mála­flokk gefi von um að miklar úrbætur verði á þessu sviði á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár