Undanfarið hef ég verið viðriðinn rannsókn á stærsta leka trúnaðargagna sem hefur átt sér stað, sem afhjúpar stórfellda spillingu þvert í gegnum ríkisstjórnir heimsins, viðskiptalífið, og allt. Niðurstöðurnar eru sláandi. Þær eru líka vel þekktar.
Þetta er annar stóri lekinn sem ég kem að með beinum hætti. Sá fyrri kom til af því að Chelsea Manning ákvað að afhjúpa skyldi tugi þúsunda stríðsglæpa og ýmislegt annað í leiðinni.
Sá leki var upphafið að iðnvæðingu upplýsingaleka. Lekar höfðu fram að því átt sér stað í smáum skömmtum, örfá skjöl eða í mesta lagi nokkrir kassar. Pentagon-skjölin voru stærsta undantekningin. Með iðnvæðingunni fór að tíðkast að heilu gagnasöfnin yrðu afhjúpuð.
Meðal stórra leka má nefna Snowden-skjölin (sem sönnuðu stórfellt eftirlit bandaríkjastjórnar með nær öllu mannkyninu), Climategate- skjölin (sem voru um margt misskilin) og Stratfor-lekinn (sem sýndi ótrúlega spillingu meðal ráðgjafa herveldisins). Það eru miklu fleiri minni lekar líka, frá upplýsingaleka úr leyniþjónustu Aserbaídsjans yfir í Lánabók Kaupþings.
Það sem sameinar þetta allt er sá skilningur að þessi gögn eiga erindi við almenning. Það færi enginn heilvita maður að leka öllum sjúkraskrám lands. Þær koma almenningi ekki við. En upplýsingar um að forsætisráðherra Íslands eða forseti Rússlands sé að fela miklar eignir - það er augljóslega fyrir almenning að vita.
En hvar endar þetta?
Eðlilegast væri að samfélagið þróist og þroskist. Að leyndarmál yfirstéttarinnar og stjórnmálanna hætti af vera leyndarmál.
Þetta krefst bæði betri laga sem tryggja gagnsæi, meiri alþjóðasamvinnu um að loka á ýmsa felustaði, og betri verndar fyrir fólk eins og Edward Snowden og Chelsea Manning, sem leggja líf sitt í hættu til að upplýsa almenning um afbrot.
Þetta þarf yfir alla að ganga. Á þriðjudaginn hrósaði Barack Obama Bandaríkjaforseti þeim sem komu að Panama-skjölunum. Á meðan sat Chelsea Manning í fangelsi og Edward Snowden í útlegð, bæði fyrir sambærilegar uppljóstranir.
Hræsnin bergmálaði um heim allan.
Stuttu síðar birtist frétt sem sýndi að CIA var að nota sömu aflandseyjar og Sigmundur Davíð til að fela eignir, stunda peningaþvætti, og auðga útsendara sína. Þá hefur verið kátt í Hvíta húsinu, gæti ég trúað.
Á sama tíma var Sergey Peskov, blaðamannafulltrúi Vladimir Putins, að sverja af sér aflandseignir sínar og fullyrða að þetta væri nú bara allt eitt allsherjar samsæri Vesturlanda gegn Rússlandi. Hann segir þetta raunar um nákvæmlega allt sem fréttist af misgjörðum Putins.
Gagnsæi hefur þann tilgang að tryggja að fólk geti ekki misnotað völd sín eða aðstöðu í óþökk samfélagsins. Greitt aðgengi að upplýsingum gerir almenningi kleift að taka betri ákvarðanir. En gagnsæi verður fyrr eða síðar að hætta að vera eitthvað sem kemur örsjaldan og þá í stórum skömmtum, ef vel á að vera.
Það er á ábyrgð allra að veita nægt aðhald þeim sem eru valdameiri í samfélaginu, að heimta að allt sé uppi á borðum.
Ef við viljum raunverulegt lýðræði er ekkert annað í boði en að auka á gagnsæið, og hætta að refsa þeim sem leggja allt í sölurnar fyrir það.

Afhjúpum samfélagið okkar
Smári McCarthy skrifar um stærstu leka sögunnar og hræsnina sem þeir afhjúpa.
Mest lesið

1
Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu
Brotaþoli lýsti flóknu ástarlífi Írisar Helgu Jónatansdóttur sem er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti. Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu þegar hann gekk á vitnið, og úr varð nokkurt orðaskak.

2
Íris Helga handtekin grunuð um umsáturseinelti í öðru máli
Íris Helga Jónatansdóttir bar við minnisleysi og sagðist ekki kannast við netfang í tölvu sinni. Fyrir dómi kom fram að hún hefði nýverið verið handtekin vegna gruns um umsáturseinelti í óskyldu máli. Hún viðurkenndi að hafa ranglega kært mann fyrir kynferðisofbeldi og sent tilhæfulausa kvörtun til barnaverndar.

3
Trump freistar þess að stöðva „bláu bylgjuna“
Kannanir benda til að demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni. Úrslitin gætu veitt þeim færi á að rannsaka embættisverk Donalds Trump.

4
Vilja nota bílinn minna en kerfið heldur þeim við stýrið
Um þriðjungur þeirra sem ekur til vinnu vill frekar ferðast með öðrum hætti. Rannsóknir Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar benda til þess að ferðatími, leiðakerfi, bílastæði og dagleg erindi geri bílinn enn að raunhæfasta kostinum fyrir stóran hóp fólks.

5
Samkaup kaupa Fjarðarkaup í Hafnarfirði
Fjarðarkaup, sem hafa verið rekin sem sjálfstæð matvöruverslun í Hafnarfirði um áratuga skeið, eru að komast í eigu Samkaupa. Fasteignafélagið Kaldalón kaupir jafnframt húsnæði verslunarinnar við Hólshraun fyrir rúma tvo milljarða króna og hyggst verja 350 milljónum til endurbóta. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

6
Sigrarnir mótast af baklandinu
Árni Már Þ. Viðarsson myndlistarmaður
Mest lesið í vikunni

1
Hátt í fjörutíu vitni í aðalmeðferð meints eltihrellis
Íris Helga Jónatansdóttir mun sitja ein í Héraðsdómi Reykjaness á mánudaginn og svara til saka. Hátt í fjörtíu vitni hafa verið boðuð vegna aðalmeðferðar málsins sem tekur fjóra daga.

2
Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu
Brotaþoli lýsti flóknu ástarlífi Írisar Helgu Jónatansdóttur sem er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti. Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu þegar hann gekk á vitnið, og úr varð nokkurt orðaskak.

3
Verður Trump taminn eftir þingkosningar?
Evrópa gerir ekki ráð fyrir Bandaríkjunum í stuðningi við Úkraínu þótt Demókratar vinni stórsigur í þingkosningum. Óttast er að ósigur Trumps geti knúið hann til dáða eða ódæða á alþjóðavettvangi.

4
Sautján missa vinnuna hjá SORPU
SORPA hefur sagt upp tíu starfsmönnum og ákveðið að endurnýja ekki tímabundna ráðningarsamninga við sjö til viðbótar. Starfsfólki fækkar því um sjö prósent. Aðgerðirnar koma í kjölfar umfangsmikilla uppsagna hjá Reykjavíkurborg í gær og á sama tíma og atvinnuleysi hefur aukist verulega á milli ára.

5
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
Vísitala neysluverðs rís um 0,44 prósent í október, aðallega vegna hærra eldsneytisverðs.

6
Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en stjórnendur áhyggjufullir
Hagnaður Landsbankans jókst um 3,7 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og nam 33,1 milljarði. Stjórnendur bankans hafa áhyggjur af mögulegu útlánatapi vegna versnandi stöðu byggingarfyrirtækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hægari sölu íbúða. Ríkissjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæplega 35 milljarða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
Mest lesið í mánuðinum

1
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragnarsdóttir nær dauða en lífi á skurðarborði Landspítalans eftir alvarlegt tilfelli meðgöngueitrunar. Íslenskur vísindamaður í Bandaríkjunum, Jóhann Elí Guðjónsson húðlæknir, leiðir brautryðjandi rannsóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúkdómurinn kemur fram. Hann telur mögulegt að þróa lyf við sjúkdómnum sem bjargað gæti mannslífum.

2
Vilja að Katla fari á elliheimili
Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á að Katla Guðnadóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkrunarheimili til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar innlagnir ungs fólks sjaldnast verða tímabundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grensásdeild en heilbrigðisstarfsfólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

3
Hjónadjöflar
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Djöfla eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

4
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.

5
Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir
Ég, hóran
Fimmtíu og sjö karlmenn eru grunaðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar vinir þeirra nauðguðu henni í hópi. Hrafnhildur Sigmarsdóttir segir brandara um „hórur“ í ræktinni endurspegla sama tilkall til kvenna.

6
Hátt í fjörutíu vitni í aðalmeðferð meints eltihrellis
Íris Helga Jónatansdóttir mun sitja ein í Héraðsdómi Reykjaness á mánudaginn og svara til saka. Hátt í fjörtíu vitni hafa verið boðuð vegna aðalmeðferðar málsins sem tekur fjóra daga.





























Athugasemdir