Tvö ráðuneyti ekki að birta upplýsingar úr málaskrám eins og lög gera ráð fyrir

Vegna upp­stokk­unar ráðu­neyta innan hafa tvö ráðu­neyti það sem af er ári ekki birt upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum eins og þeim er skylt að gera sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum. Það stendur þó til bóta.

Bæði mat­væla­ráðu­neytið og menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytið hafa það sem af er ári ekki birt upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum eins og kveðið er á um að ráðu­neyti skuli gera sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum.

Í báðum til­fellum er ástæðan fjölgun ráðu­neyta og upp­stokkun mála­flokka innan stjórn­ar­ráðs­ins, sam­kvæmt svörum ráðu­neyt­anna til Kjarnans, en unnið er að því að koma birt­ing­unni af stað.

Frá því að breyt­ingar á upp­lýs­inga­lögum tóku gildi í fyrra hefur ráðu­neytum verið skylt að birta upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum með raf­rænum hætti. Að lág­marki skulu ráðu­neytin birta skrá yfir mál sem eru til með­ferðar í ráðu­neyt­inu í til­efni af inn­sendum eða útsendum erindum, þar sem til­greind eru bæði máls­númer og heiti máls.

Þessar breyt­ingar voru gerðar á upp­lýs­inga­lögum í því skyni að „auka upp­lýs­inga­frelsi og gagn­sæi í stjórn­sýsl­unni“ sagði í til­kynn­ingu stjórn­valda er vakin var athygli á því að birt­ing þess­ara upp­lýs­inga væri hafin í mars í fyrra.

Þá var sett upp sér­stök síða á vef stjórn­ar­ráðs­ins, þar sem hægt hefur verið að nálg­ast Excel-skjöl með upp­lýs­ingum úr mála­skrám ráðu­neyta allar götur síðan. Upp­lýs­ing­arnar eru birtar með eins til tveggja mán­aða töf, þannig að núna í júlí hafa nýj­ustu upp­lýs­ing­arnar úr mála­skránum sem birtar eru á vef stjórn­ar­ráðs­ins verið frá því í maí.

Unnið að sameiningu málaskráa og nýjum verkferlum

Sem áður segir er hins vegar ekki hægt að sjá neinar upp­lýs­ingar úr mála­skrám tveggja ráðu­neyta það sem af er ári, og það á sínar skýr­ingar.

Í svari frá mat­væla­ráðu­neyt­inu segir að þegar ráðu­neytið tók til starfa 1. febr­úar síð­ast­lið­inn hafi haf­ist „umfangs­mikil vinna við sam­ein­ingu mála­skráa af mál­efna­sviðum fyrrum ráðu­neyta“ og að nú sjái fyrir end­ann á þeirri vinnu. Því stytt­ist í „að hægt verði að gera upp­lýs­ingar úr mála­skránni aðgengi­legar á vef stjórn­ar­ráðs­ins“.

Í svari frá menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu segir að eftir breyt­ing­arnar sem gerðar voru á ráðu­neyt­unum hafi verið unnið að því að búa til nýja vinnu­ferla. Til standi að birta þær upp­lýs­ingar sem standa út af um eða eftir mán­að­ar­mót, er upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins snúi aftur úr sum­ar­fríi.

Kjarninn sendi for­sæt­is­ráðu­neyt­inu einnig fyr­ir­spurn vegna þessa, en ráðu­neytið ann­ast fram­kvæmd upp­lýs­inga­laga og er það í höndum for­sæt­is­ráð­herra hvernig birt­ingu upp­lýs­inga frá ráðu­neyt­unum skal háttað, þar með talið hvar og hvernig upp­lýs­ingar skuli birtar, eins og nánar er farið yfir í reglu­gerð um birt­ingu upp­lýs­inga að frum­kvæði stjórn­valda sem Katrín Jak­obs­dóttir setti árið 2018.

Frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu höfðu hins vegar ekki svör er þessi frétt birt­ist, fyrir utan sjálf­virkt svar um að tölvu­póstur blaða­manns hafi verið mót­tek­inn.

Með því staðl­aða svari fylgir eft­ir­far­andi klausa: „Athygli er vakin á að skv. 2. mgr. 13. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 er ráðu­neyti í Stjórn­ar­ráði Íslands skylt að birta upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum með raf­rænum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár