Harmóníkuhátíð Reykjavíkur

Margir af bestu og þekktustu harmóníku­leikurum landsins verða á Árbæjar­safni um helgina.

Harmóníku­tónar munu hljóma frá Árbæjar­safninu í dag. Þá fer fram hin árlega Harmóníku­hátíð Reykja­víkur, sem haldin er í minningu stofnanda hennar, Karls Jónatans­sonar harmóníku­frumkvöðuls. Á hátíðinni koma fram margir af bestu og þekktustu harmóníku­leikurum landsins.

Á sama tíma verður gestum boðið að taka þátt í heyönnum eins og þær tíðkuðust fyrr á tímum, ef veður helst þurrt. Gefst því tækifæri til að komast í kynni við orf, ljá og hrífur og hlýða á sama tíma á ljúfa harmóníku­tóna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár