Indverjar lækka stýrivextina í annað sinn á skömmum tíma

Seðla­banki Indlands, næsta fjölmennasta ríkis heims með 1,2 milljarða íbúa, hefur lækkað stýri­vexti um 0,25 prósentu­stig og eru stýri­vextir bankar nú 7,5 prósent í landinu. Þessi vaxta­lækkun miðar að því að lækka vexti á lánum seðla­bankans til banka á markaði, að því er segir í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC. Markmiðið með þessu er að örva hagkerfið og stuðla að frekari umsvifum í atvinnu­lífinu.

Verðbólga í Indlandi mælist nú rúmlega fimm prósent á ársgrundvelli, en verðbólgu­markmið seðla­bankans er sex prósent, að því er segir í frétt BBC. Þessi ákvörðun kom sérfræðingum á markaði á óvart, og hækkuðu vísitölur hlutabréfa­markaða í kjölfarið, segir í frétt Wall Street Journal.

Hagvöxtur á Indlandi var rúmlega fimm prósent í fyrra, og gera spár ráð fyrir svipuðum vexti á þessu ári.

Landið er þekkt fyrir miklar efnahagslegar andstæður, mikið ríkidæmi víðsvegar en alvarlega fátækt á sama tíma. Stjórn­völd hafa unnið eftir markmiði um að stækka milli­stéttina í landinu, á undan­förnum árum, með það að markmiði að fækka þeim sem eru í sárri fátækt og um leið að stuðla að heil­brigðum vexti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár