Skuldir sveitarfélaga stóraukast vegna nýrra útreikninga

Lífeyris­skuld­bindingar nær allra sveitar­félaga jukust töluvert í fyrra, þar sem þær voru endur­metnar með tilliti til hærri meðal­aldurs lífeyrisþega. Vegna þessarar breytingar aukast meðal annars skuldir Ísafjarðar­bæjar um tæpan fimmtung.

Skuldir Ísafjarðar aukast um 17 prósent vegna nýrra reikninga á lífeyrisskuldbindingum.
Skuldir Ísa­fjarðar aukast um 17 pró­sent vegna nýrra reikn­inga á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum. Mynd: Visit Westfjords

Skulda­staða flestra sveitarélaga hérlendis versnaði til muna í fyrra, þar sem nýir útreikningar um meiri lífeyris­skuld­bindingar vegna hækkandi meðal­aldurs voru bókfærðar þá. Bæjar­stjóri Ísafjarðar hefur kallað eftir því að ríkis­valdið stígi inn til að létta þessum auknu álögum af sveitar­félögum og Samband íslenskra sveitar­félaga gagnrýnir lítinn tímafrest sem sveitar­félögin fengu til að bregðast við þessum útreikningum.

Gamlir útreikningar en nýlega samþykktir

Umræddir útreikningar voru fyrst gefnir út árið 2015 af Félagi íslenskra trygginga­stærð­fræðinga, en þær miða við spár um þróun dánar­tíðni á næstu áratugum í stað dánar­tíðni undan­farinnar ára.

Á þeim tíma ákvað fjármála­ráðherra að staðfesta þær ekki og þurftu því sveitar­félögin ekki að taka tillit til þeirra í eigin lífeyris­skuld­bindingum. Hins vegar ákvað Reykja­víkurborg að gera það á þeim tíma, en lífeyris­skuld­bindingar sveitar­félagsins hækkuðu því um 6,5 milljarða króna.

Fjármála­ráðuneytið skipti svo um skoðun rétt fyrir síðustu jól, en þann 22. desember í fyrra var tilkynnt að nýju útreikningarnir voru samþykktir, sem leiddi til þess að sveitar­félögin þurftu að bókfæra þau í sínum ársreikningum.

Hækkunin mikill skellur

Heilt yfir er búist við því að lífeyris­skuld­bindingar hækki um fimm prósent vegna þessara nýju útreikninga, en hækkuninni er þó ójafnt dreift á milli sveitar­félaga.

Frétta­miðillinn Bæjarins besta greindi frá því fyrr í vikunni að lífeyris­skuld­bindingar Ísafjarðar­bæjar hækkuðu langt umfram áætlanir árið 2021 vegna samþykktar á nýju útreikningunum. Samkvæmt fjármála­stjóra bæjar­félagsins aukast skuldir þess um 390 milljónir króna vegna þeirra, úr 1,89 milljörðum króna í 2,2 milljarða króna. Þetta jafn­gildir 17 prósenta hækkun.

Birgir Gunnarsson, bæjar­stjóri Ísafjarðar, segir hækkunina vera mikinn skell fyrir bæjar­félagið í samtali við Kjarnann. Hann bætir þó við að skulda­aukningin sé ekkert einsdæmi hjá Ísafjarðarbæ, önnur sveitar­félög finni einnig fyrir henni. Í samtali við Bæjarins besta segir að hann að það væri ekki óeðlilegt að ríkis­valdið horfi til þess að létta þessum nýtilkomnu álögum af sveitar­félögum.

Kann að vera ágætt að taka skellinn núna

Sigurður Ármann Snævarr, sviðs­stjóri hag- og upplýsinga­sviðs Sambands íslenskra sveitar­félaga, greinir frá áhrifum nýrra lífeyris­útreikninga á fjárhag sveitar­félaganna í minnis­blaði sem hann sendi nýlega frá sér. Samkvæmt því gefst sveitar­félögum ekki kostur á frestun á að taka tillit til þessara útreikningana, svo lífeyris­skuld­bindingarnar hækka strax.

Í samtali við Kjarnann segir Sigurður þó að hann telji ólíklegt að þessi aukna skuld­binding muni leiða til skertrar þjónustu hjá sveitar­félögunum, sem hafi heilt yfir skilað góðum rekstri á síðasta ári. Einnig mætti segja að þetta sé að einhverju leyti heppileg tíma­setning til að taka tillit til þessara breyttu útreikninga núna, þar sem fjármála­reglum sveitar­félaganna hefur verið tíma­bundið vikið til hliðar til ársins 2026.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár