Bruninn á Bræðraborgarstíg: Græðgin æðri mennskunni og reisn allra

Rit­stjórn Kjarnans hefur verið til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa árs­ins 2020 fyrir umfjöllun sína um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg og marg­hátt­aðar afleið­ingar hans. Hér er hægt að lesa umfjöll­un­ina.

Bruninn á Bræðra­borg­ar­stíg 1 í fyrra­sumar, í hjarta Reykja­víkur, er sá mann­skæð­asti sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni. Þrjár ungar mann­eskjur fór­ust, fólk sem hafði komið til Íslands frá heima­land­inu Póllandi til að vinna. Það hafði séð hér tæki­færi til að bæta hag sinn til fram­tíðar.

Í ítar­legri umfjöllun Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg var fjallað um húsið sjálft, eig­endur þess og sögu og við­brögð opin­berra stofn­anna og ann­arra við atburði sem á sér enga hlið­stæðu á síð­ari tímum. Varpað var ljósi á fram­lag erlends verka­fólks í auk­inni hag­sæld íslensku þjóð­ar­innar, á kjör þess og þær aðstæður sem það er látið búa við og hvernig þær aðstæður gátu skap­ast.

Fjallað var um sam­fé­lagið í Gamla Vest­ur­bænum sem stóð þétt saman og reyndi eftir fremsta megni að rétta fórn­ar­lömbunum, sem mörg hver hafa lítið tengsla­net hér á landi, hjálp­ar­hönd og sagðar sögur þeirra sem komu fyrst á vett­vang brun­ans.

Þunga­miðja umfjöll­un­ar­innar voru frá­sagnir þeirra sem lifðu af. Fólks sem kom til Íslands í leit að betra lífi en glímir nú við afleið­ingar áfalls­ins sem á eftir að fylgja því alla ævi.

Græðgi æðri mennsku

Um er að ræða umfangs­mesta rann­sókn­ar­verk­efni sem rit­stjórn Kjarnans hefur ráð­ist í. Kjarninn vildi kafa ofan í málið frá öllum hliðum og upp­runa­lega umfjöll­unin, sem birt var um miðjan nóv­em­ber 2020, inni­hélt alls 15 frétta­skýr­ingar og við­töl, tæp 31 þús­und orð. Henni var svo fylgt eftir með ítar­legum hætti út síð­asta ár.

Umfjöll­unin snertir alla fleti máls­ins. Hún lýsir mann­legum harm­leik, kerf­is­legri jað­ar­setn­ingu erlendra verka­manna á Íslandi og því hvernig við sem sam­fé­lag sam­þykkjum að græðgi sé æðri mennsku og reisn allra.

Kjarninn taldi mik­il­vægt að birta þessa umfjöllun og varpa með því ljósi á stöðu jað­ar­settra hópa sem oft búa við óboð­legar aðstæður. Umfjöll­unin var í gær til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands í flokknum umfjöllun árs­ins. Um er að ræða átt­undu til­nefn­ingu blaða­manna Kjarnans frá því að hann var stofn­aður 2013, en þeir hafa hlotið til­nefn­ingu á hverju ári á tæp­lega átta ára líf­tíma mið­ils­ins. Blaða­menn Kjarnans hafa tví­vegis hlotið verð­launin á þeim tíma.

Allar myndir sem fylgdu með umfjöll­un­inni, og eru sýni­legar hér, eru teknar af Golla og Báru Huld Beck. Mynd­bandið sem sést efst í þess­ari umfjöllun er gert af Golla.

Hér að neðan er hægt að lesa þau efni sem mynd­uðu umfjöllun Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg 1 á árinu 2020:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið undanfarið ár