Á þessari stundu berast þær fréttir í fjölmiðlum að jöklar hafi dregist mjög saman um alla jörð og haldi sú rýrnun áfram jafnt og þétt. Þetta sjá allir að er mjög alvarleg þróun, því jöklar eru eitt helsta forðabúr heims af fersku vatni, og leiðir óhjákvæmilega til þess að þurrkar aukist og eyðimerkur breiðist út. Ástæðan er vitanlega aukinn hiti jarðar, það sjá allir, og heyrist nú víða sagt að sennilega séu ekki lengur neinir eftir sem véfengi þessar breytingar – nema fáeinir nytsamir fáráðlingar sem gjamma hátt í miðlum. Hins vegar séu nú komnir á kreik loftslags-kýnistar, eða kannske loftslags-hundingjar, semsé menn sem viti vel hvað er á seyði en kæri sig kollótta um það, þeir séu vissir um að geta bjargað sínu skinni, í Norður-Svíþjóð, Vopnafirði eða á tunglinu, þar sem þeir láti kallinn gefa jarðarbúum langt nef, og vilji halda áfram að raka til sín öllum auðæfum …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir