Slæmt sumar veldur metnotkun á heitu vatni

Aldrei hefur meira verið neytt af heitu vatni á höfuð­borgar­svæðinu, en Veitur segir meðal annars slæmt veðurfar liggja að baki metnotk­un­inni.

Heita­vatnsnotkun á höfuð­borgar­svæðinu á fyrstu sex mánuðum ársins hefur aldrei verið meiri. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu Veitna fyrr í dag.

Samkvæmt tilkynningunni hefur sala á heitu vatni í Reykjavík frá janúar til júní í ár verið 10% meiri en að meðaltali, en í fjórum af þeim sex mánuðum sem liðnir eru af árinu hefur notkunin verið meiri en árið á undan. Mest hefur misræmi í heita­vatnsnotkun milli ára verið í janúar og júní, en vikumet á notkuninni var slegið dagana 16.-23 janúar. Sé miðað við allt tímabilið hefur notkunin heldur aldrei verið meiri á fyrstu sex mánuðum ársins á höfuð­borgar­svæðinu.

Veitur segja tvær megin­ástæður liggja að baki þessari miklu notkun, en það er annars vegar heildar­aukning í heitavatns­neyslu höfuð­borgarbúa síðustu ára og hins vegar kuldatíð í janúar og febrúar ásamt einstak­lega „rysjóttri“ tíð í maí og júní á Suð-Vestur­horni landsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár