Viðskiptavinir Ashley Madison eru að greiða þúsundir dala til að forðast uppljóstrun

Fjöldi viðskipta­vina vefsíðunnar Ashley Madison, sem sérhæfði sig í að aðstoða fólk við að halda framhjá maka sínum, hefur orðið fyrir fjárkúgunar­tilburðum í kjölfar þess að síðan var hökkuð með þeim afleiðingum að persónu­upplýsingum þúsunda notenda lak á vefinn. Þeir sem stunda fjár­kúgunina hafa sent tölvu­pósta á fólk sem hafði skráð sig á síðuna og sagt þeim af þeir borgi ekki ekki ákveðna fjárhæð, í rafmyntinni Bitcoin, þá muni þeir deila þeim upplýsingum sem um það er að finna á netinu með þeirra nánustu. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

ashley
ashley

Þar er greint frá því að Toshiro Nishimura, greinandi hjá Cloudmark, hafi kannað þá Bitcoin-reikninga sem Ashley Madison-notendurnir voru að leggja inn á og komist að þeirri niður­stöðu að á bakvið þá væru óprúttnir fjár­kúgarar. Hann fylgdi alls eftir 67 færslum sem gáfu til kynna að notendur Ashley Madison hafi greint alls um 6.400 dali, um 830 þúsund krónur, til fjár­kúgara.

Þegar lögreglan í Toronto hélt blaðamanna­fund vegna Ashley Madison-lekans og rann­sóknar hennar vegna hans í ágúst þá birti hún m.a. dæmi um fjárkúgunar­tölvupóst sem einum notanda hafði borist. Hann má sjá hér að neðan.


Icehot1 kveikti í Ashley Madison-umræðunni á Íslandi


Gagna­lek­inn af Ashley Madison-síð­unni hefur verið mikið í umræð­unni á Íslandi und­an­farna daga eftir að greint var frá því að gam­alt net­fang Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra væri á meðal þeirra net­fanga sem þar væri að finna. Þóra Margrét Bald­vins­dóttir, eig­in­kona Bjarna, gerði þetta að umtals­efni á Facebook-síðu sinni í vik­unni og Bjarni deildi inn­leggi Þóru á aðdá­enda­síðu sinni í kjöl­farið.

ashley 2
ashley 2

Þóra Margrét sagði að þeim hjónum hafi borist margar ábendingar um að nú sé talsvert rætt manna í milli að gamalt netfang Bjarna tengist gögnunum. Netfangið sem um ræðir er bjarniben@n1.is.

Þóra sagði að þau hjónin hafi heyrt um þennan „umdeilda vef í erlendum fréttum fyrir um 7 árum (2008). Í framhaldi af því skoðuðum við vefinn fyrir forvitnis­sakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá netfang, erlent póstnúmer og fleira sem við gerðum í algjörum hálf­kæringi og af léttúð,“ skrifaði Þóra.

Hún segir þau hjónin aldrei síðan hafa farið inn á vefinn og ekki hafi verið greitt fyrir skráningu eða aðgang að honum. „Þessi heimsókn hefur ekki leitt til samskipta við nokkurn mann, hvað þá trúnaðar­brots af neinum toga. Ekki er allt sem sýnist á netinu,“ skrifaði hún.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðunni All about Ashley, þar sem hægt er að fletta upp notendum síðunnar, kemur fram að notenda­nafn Bjarna hafi verið IceHot1. Heimilis­fangið sem skráð var var í Bradenton í Flórída í Banda­ríkjunum, þar sem faðir Bjarna á hús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár