Netfang Bjarna Ben skráð á Ashley Madison - hjónin skráðu sig „fyrir forvitnissakir“

Gamalt net­fang Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra er á meðal þeirra net­fanga sem tengj­ast gagna­leka af síð­unni Ashley Madison. Þóra Margrét Bald­vins­dóttir, eig­in­kona Bjarna, gerir þetta að umtals­efni á Facebook-síðu sinni og Bjarni deildi inn­leggi Þóru á aðdá­enda­síðu sinni nú í hádeg­inu.

Þóra Margrét segir að þeim hjónum hafi borist margar ábend­ingar um að nú sé tals­vert rætt manna í milli að gam­alt net­fang Bjarna teng­ist gögn­unum. Net­fangið sem um ræðir er bjarniben@n1.is. Ashley Madison er vef­síða sem er ætluð fólki sem vill halda fram­hjá og kom­ast í kynni við annað fólk í sömu erinda­gjörðum. Gögnum um mik­inn fjölda fólks var lekið á netið fyrr í mán­uð­inum.

Þóra segir að þau hjónin hafi heyrt um þennan „umdeilda vef í erlendum fréttum fyrir um 7 árum (2008). Í fram­haldi af því skoð­uðum við vef­inn fyrir for­vitn­issakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá net­fang, erlent póst­númer og fleira sem við gerðum í algjörum hálf­kær­ingi og af léttúð,“ skrifar Þóra.

Hún segir þau hjónin aldrei síðan hafa farið inn á vef­inn og ekki hafi verið greitt fyrir skrán­ingu eða aðgang að honum. „Þessi heim­sókn hefur ekki leitt til sam­skipta við nokkurn mann, hvað þá trún­að­ar­brots af neinum toga. Ekki er allt sem sýn­ist á net­inu,“ skrifar hún.



Kæru vinir. Ekki er öll vit­leysan eins. Okkur hjónum hafa borist margar ábend­ingar um að nú sé tals­vert rætt manna í...

Posted by Þóra Margrét Bald­vins­dóttir on Monday, August 31, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár