Stórfyrirtæki tilkynna um miklar fjárfestingar í Egyptalandi

Breska olíu­félagið BP, British Petroleum, hefur gengið frá stærsta fjár­festinga­samningi sem gerður hefur verið við egypsk stjórn­völd. Hann er upp á tólf milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur rúmlega 1.600 milljörðum króna. Frá þessu greindi Philip Hammond, utan­ríkis­ráðherra Bretlands, á ráðstefnu í Egypta­landi í dag. Fjár­festingin, sem er í olíu­iðnaði, dreifist á fjögur ár. Hammond segir að bresk fyrirtæki vilji komi að uppbyggingu í Egypta­landi og sjá mikil tækifæri í því að byggja upp innviði þegar komi að olíu­iðnaði.

BP signs $12B Egypt energy deal; U.S. appeals size of oil spill http://t.co/sjPJSrFKgw $BP

— SA Breaking News (@MarketCurrents) March 15, 2015

Þýski raftækja- og véla­fram­leiðandinn Siemens tilkynnti einnig um miklar fjár­festingar í Egypta­landi á ráðstefnunni, en heildar­umfang þeirra nemur um tíu milljörðum Bandaríkja­dala, rétt um 1.400 milljörðum króna.

Egypta­land hefur átt erfitt uppdráttar í efnahags­lífinu undan­farin misseri, en mikill glundroði hefur einkennt stjórn­skipan og viðskiptalíf landsins eftir fall einræðis­herrans Hosni Mubarak árið 2011. Íbúar landsins eru svipað margir og í Þýska­landi, eða rúmlega 80 milljónir. Landið hefur sterkari stoðir og meiri möguleika til að byggja upp sterkt hagkerfi en flestar þjóðir Afríku, þar sem olíu­iðnaður og ferða­þjónusta eru á meðal mikil­vægustu atvinnu­greina landsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár