Ingemar Stenmark kann alls ekki að dansa

Fyrir þá sem ekki fylgjast með sænsku raun­veruleika­sjónvarpi, sem líklega eru flestir lesendur Kjarnans, er best að taka fram strax að Ingemar Stenmark sigraði í sænsku útgáfunni af sjónvarps­dans­keppninni „Lets Dance.“ Í þættinum keppir frægt fólk í samkvæmis­dönsum og það er óhætt að segja að það sé misduglegt.

Ingemar Stenmark er til dæmis ekki góður dansari – reyndar er hann eiginlega mjög vondur dansari. En frá því að keppnin hófst fyrir um þremur mánuðum hefur legið í loftinu að hann myndi vinna. Keppnin og umtalið í kringum hana segir okkur nefnilega afskaplega margt um sænsku þjóðar­sálina og svo auðvitað Stenmark sjálfan.

Hetjan sem allir elska


Þegar Stenmark var upp á sitt besta stöðv­að­ist Svíþjóð þegar hann keppti. Hlé var gert á störfum þings­ins, sjón­vörpum var rúllað inn í skóla­stofur og á götum úti safn­að­ist fólk saman fyrir utan raf­tækja­versl­anir og horfðu á útsend­ing­una í gegnum búð­ar­glugg­ann. Hann varð heims­meist­ari í svigi og stór­svigi árið 1978 og Ólymp­íu­meist­ari í sömu greinum 1980. Hann fékk hins vegar ekki að keppa á Ólymp­íu­leik­unum 1984 þar sem hann tald­ist vera atvinnu­maður, en þeir fengu ekki að keppa það árið. Hann er ennþá sig­ur­sæl­asti skíða­maður sög­unnar með 86 gull­verð­laun í svigi og stór­svigi en það voru einu grein­arnar sem hann keppti í.

Aðdáun Svía hefur skilað sér í fjölmörgum verð­launum og viðurkenningum handa honum sem einn af fremstu íþrótta­mönnum landsins. Stenmark þótti hins vegar vera feiminn og til eru mörg dæmi um viðtöl þar sem hann svarar spurningum einna helst með eins atkvæðis orðum.

Eitt sinn var Stenmark spurður hvernig hann hefði farið að því að sigra í einhverri keppninni. Svarið er fyrir löngu orðið klassískt í Svíþjóð: „De e bar å åk,“ það er bara að skíða. Í annað skipti þar sem ekki hafði gengið nógu vel vildi frétta­maðurinn meina að Stenmark hefði getað gert betur. „Ef þú heldur að þetta sé svona létt skaltu bara skíða sjálfur,“ svaraði Stenmark alvarlegur á svip.

Eins og margir aðrir var Stenmark ósáttur við skatta­stefnu sænskra stjórn­valda og þess vegna flutti hann lögheimili sitt til Mónakó á níunda áratugnum. Þar bjó hann til 2006 þegar hann flutti aftur til Svíþjóðar þar sem hann býr enn í dag. Síðustu ár hefur hann komið fram í mörgum sjónvarps­þáttum, meðal annars í Meistari meistaranna þar sem gamlir íþrótta­menn keppa hver við annan í ýmsum greinum á milli þess sem ferill þeirra er rifjaður upp. Einhvern veginn lá það í loftinu að hinn 55 ára gamli Stenmark stæði upp sem sigurvegari enda kom það á daginn. Fáir bjuggust hins vegar við því að nokkrum árum síðar myndi hann samþykkja að taka þátt í dans­keppni í sjónvarpi.

Skíða­kappinn sýnir hér blaða­ljós­myndurum gull­verðlaunin sem hann hlaut á Vetrar­ólympíu­leikunum í Lake Placid í Band­ríkjunum árið 1980. Mynd: EPA

Brosandi Stenmark fær skammir frá dómurunum


Segja má að fjöl­miðlar hafi gengið af göfl­unum þegar þetta frétt­ist. Frá fyrsta degi hafa slúð­ur­blöðin verið full af fréttum og bæði Afton­bla­det og Expressen kepp­ast við að búa til krassandi fyr­ir­sagnir. Yfir­leitt snú­ast þær um leyni­vopn skíða­manns­ins, átök hans við dóm­ar­ana eða við­brögð þeirra sem í hverri viku féllu úr keppni þrátt fyrir að vera miklu betri dans­arar.

Skíðakappinn sýnir hér blaðaljósmyndurum gullverðlaunin sem hann hlaut á Vetrarólympíuleikunum í Lake Placid í Bandríkjunum árið 1980. Mynd: EPA
Skíða­kapp­inn sýnir hér blaða­ljós­mynd­urum gull­verð­launin sem hann hlaut á Vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Lake Placid í Band­ríkj­unum árið 1980. Mynd: EPA

Hörðustu gagn­rýnendur Stenmarks voru dómararnir sem viku eftir viku minntu áhorf­endur heima í stofu á að þetta væri dans­keppni, en ekki vinsælda­keppni. Nú er engum blöðum um það að fletta að skíða­maðurinn lagði mikið á sig enda kunni hann nánast ekkert að dansa áður en keppnin hófst. En það verður seint sagt að hann hafi taktinn í mjöðmunum þótt honum hafi tekist að brosa í gegnum heilu þættina. Í sænskum miðlum hefur einmitt verið sagt frá því að hingað til hafi bros frá Stenmark verið svona eins og hlaupárs­dagur, kæmi einu sinni á fjögurra ára fresti.

En allt kom fyrir ekki. Í úrslita­þættinum mætti hann hinni vinsælu söngkonu Marie Serneholt sem allir voru sammála um að væri miklu betri dansari – meira að segja eiginkona Stenmarks sagði það eftir úrslitin. Pabbi Marie var ómyrkur í máli og sagði að sjón­varpstöðin hefði mismunað keppendum. Ljóst væri að TV4 hefði frá upphafi viljað að Stenmark stæði uppi sem sigurvegari. Dómarinn Tony Irving var hundfúll eftir úrslitin og sagði að það besta við að keppninni væri lokið væri að nú þyrfti hann ekki að heyra nafnið Stenmark endalaust. Sjálfur var sigurveg­arinn hissa og sagðist alls ekki hafa átt von á þessu.

Svíar eru æstir í raunveruleikasjónvarp


Áhugi Svía á raun­veru­leika­sjón­varpi og lífi ríka og fal­lega fólks­ins er miklu meiri en flestir átta sig á. Fyrir utan tíma­ritin og dag­blaðs­grein­arnar kepp­ast allar sjón­varps­stöðvar við að bjóða upp á þætti þar sem fræga fólkið spjallar við fræga fólkið, eldar með fræga fólk­inu, gerir upp hús með fræga fólk­inu eða keppir hvert við annað.

Eft­ir­sóknin í 15 mín­útna frægð er mikil, í Svíþjóð jafnt sem ann­ars staðar.

Hér er hægt að sjá stefnumóta­þætti þar sem bændur leita sér að maka og þætti þar sem fólk sem er skuldugt upp fyrir haus fær aðstoð með fjármálin. Hér má fylgjast með öryggis­vörðum í neðan­jarðar­lestar­kerfi Stokk­hólms að störfum og svo er auðvitað boðið upp á sænskar útgáfur af Big Brother og ástar­dramanu Paradise Hotel þar sem ungt fólk með magavöðva, húðflúr og gervi­brjóst reynir að láta líta út fyrir að það sé jafnvel enn vitlausara en það er í raun og veru. Síðast þegar auglýst var eftir keppendum í Paradise Hotel sóttu ríflega 2000 um fyrsta sólar­hringinn en umsóknir voru fleiri en tíu þúsund þegar uppi var staðið. Eftir­sóknin í 15 mínútna frægð er mikil, í Svíþjóð jafnt sem annars staðar.

Það átti þess vegna ekki að koma neinum á óvart að Ingemar Stenmark skyldi sigra í Lets Dance. Fyrir utan að vera einn dáðasti sonur þjóðarinnar var þátttaka hans uppskrift að raun­veruleika­drama af bestu gerð með átökum, umdeildum ákvörðunum og klúrnum bröndurum þátta­stjórn­andans.

Sjálfur segist Stenmark ætla að taka sér hlé frá fjöl­miðlum næstu mánuði og njóta lífsins með fjöl­skyldunni. Hann vill ekki meina að sigurinn hafi verið ósann­gjarn, reglurnar séu einfald­lega þannig að fólkið heima í stofu kjósi og það hafi kosið hann. Enn ein gull­verðlaunin í safnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár