Setja 12 milljónir í loftslagsstefnu og aðgerðaráætlun fyrir Stjórnarráðið

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að leggja 12 millj­ónir króna af stefnufé árið 2018 til gerðar lofts­lags­stefnu og aðgerð­ar­á­ætl­unar fyrir Stjórn­ar­ráðið.

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að leggja 12 millj­ónir króna af stefnufé árið 2018 til gerðar lofts­lags­stefnu og aðgerð­ar­á­ætl­unar fyrir Stjórn­ar­ráðið. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sætis- og umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytum.

Hluti fjár­magns­ins verður not­aður í vinnu sér­fræð­ings eða ráð­gjafa og hluti til beinna aðgerða til að draga úr og hefja kolefn­is­jöfnun á starf­semi Stjórn­ar­ráðs­ins.

„Lofts­lags­stefna fyrir Stjórn­ar­ráðið verður eitt þeirra verk­efna sem unnið verður að undir hatti aðgerða­á­ætl­unar fyrir Ísland í lofts­lags­málum, sbr. stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, en hún mun líta dags­ins ljós á þessu ári,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Gert er ráð fyrir því að hvert ráðu­neyti til­nefni tengilið sinn í þessa vinnu og setji saman tveggja til þriggja manna teymi sem starfi með sér­fræð­ingi/ráð­gjafa við und­ir­bún­ing og fram­fylgd verk­efn­is­ins. Í til­kynn­ing­unni segir rík­is­stjórnin að hún telji mik­il­vægt að Stjórn­ar­ráðið fari fram með góðu for­dæmi, dragi úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í eigin ranni og vinni að því að kolefn­is­jafna Stjórn­ar­ráðið sem fyrst.

„Þá munu stofn­anir hins opin­bera geta notið góðs af þessu starfi og fengið ráð­gjöf um hvernig þær geti markað sér stefnu og aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum. Fleiri fyr­ir­myndir er einnig að finna hjá þeim rík­is­stofn­unum, sveit­ar­fé­lögum og fyr­ir­tækjum sem þegar hafa riðið á vaðið og markað sér lofts­lags­stefnu.“

Starfinu verður stýrt af umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár