Atvinnuleysi jókst milli ára og starfandi fækkaði

Um 9.800 einstak­lingar voru án atvinnu í desember. Atvinnu­leysi lækkar á milli mánaða þegar tölurnar hafa verið árstíðar­leiðréttar.

Atvinnu­leysi jókst og hlutfall starfandi lækkaði á milli desember­mánaða 2024 og 2025, samkvæmt nýrri vinnu­markaðs­rannsókn Hagstofu Íslands. Atvinnu­leysi jókst um 0,5 prósentu­stig, á sama tíma og hlutfall starfandi lækkaði um 1,1 prósentu­stig og atvinnu­þátttaka minnkaði um 0,7 prósentu­stig.

Atvinnu­leysi mældist 4,2 prósent í desember 2025 meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára. Um 9.800 einstaklingar voru þá án atvinnu. Hlutfall starfandi var 76,0 prósent, sem samsvarar tæplega 221.900 manns, og atvinnu­þátttaka var 79,3 prósent eða um 231.700 manns á vinnu­markaði.

Þegar tölurnar eru árstíða­leiðréttar mældist atvinnu­leysi 4,5 prósent í desember. Árstíða­leiðrétt hlutfall starfandi var 76,9 prósent og atvinnu­þátttaka 80,5 prósent.

Á milli nóvember og desember sýna árstíða­leiðréttar tölur þó lækkun í atvinnu­leysi, sem minnkaði um 2,7 prósentu­stig. Hlutfall starfandi jókst um 0,3 prósentu­stig á sama tíma en atvinnu­þátttaka dróst saman um 1,9 prósentu­stig.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár