Yfir milljón manns í Norður-Kóreu „með hita“

Yfirvöld í Norður-Kóreu fullyrða að um milljón íbúa landsins séu „með hita“eftir að fyrsta COVID-tilfellið var staðfest fyrir helgi. Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur skipað sjálfan sig sem yfirmann sjúk­dómsvið­bragðra.

Maður á lestarstöð í Seoul í Suður-Kóreu fylgist með upplýsingafundi yfirvalda í Norður-Kóreu um kórónuveriufaraldurinn sem hefur loks náð þar fótfestu, um tveimur ogh álfu ári eftir að fyrsta smitið greindist í Kína.
Maður á lest­ar­stöð í Seoul í Suður-Kóreu fylgist með upp­lýs­inga­fundi yfir­valda í Norður-Kóreu um kór­ónu­ver­iu­far­ald­ur­inn sem hefur loks náð þar fót­festu, um tveimur ogh álfu ári eftir að fyrsta smitið greind­ist í Kína. Mynd: EPA

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur húðskammað embættis­menn í heibrigðismálum vegna COVID-19 faraldursins sem loks hefur náð fótfestu í ríkinu. Helsta gagnrýni Kim beindist að því að apótek hafi ekki verið opin allan sólar­hringinn og hefur hann skipað norður-kóreska hernum að dreifa lyfjum til þeirra sem hafa veikst.

Mistök við að útdeila lyfjum sem skyldi má rekja til „embættis­manna og heilbrigðis­starfsfólks sem átti að sjá um dreifinguna sem bretti ekki upp ermarnar og viðurkenndi ekki krísuna sem nú stendur yfir,“ hefur ríkis­miðillinn í Norður-Kóreu eftir Kim.

Á allt öðrum stað en heimsbyggðin

Á meðan flest lönd eru farin að einbeita sér að lífinu eftir COVID greindist fyrsta COVID-19 smitið í Norður-Kóreu á fimmtudag, um tveimur og hálfu ári eftir að fyrsta smitið greindist í Kína. Sérfræðingar eru þó sann­færðir um að faraldurinn hafi geisað í einræðis­ríkinu í nokkurn tíma.

Yfirvöld staðfesta að faraldurinn hafi náð til landsins og óttast er að yfir milljón manns séu smitaðir. Það eru yfirvöld hins vegar ekki tilbúin að viðurkenna en samkvæmt þeim er aðeins um „hita“ að ræða. Að minnsta kosti 50 manns hafa látið lítið en óljóst er hversu margir þeirra reyndust smitaðir af COVID-19 þar sem sýnatöku­geta yfirvalda er af skornum skammi.

Norður-Kóreubúar berskjaldaðir fyrir smiti

Íbúar í Norður-Kóreu eru berskjaldaðir fyrir veirunni. Bólu­setningar­hlutfall er lágt og heilbrigðis­þjónusta takmörkuð.Alþjóða­samfélagið bauðst til að útvega Norður-Kóreu milljónir skammta af bóluefnum, frá kínverskum bóluefna­fram­leiðanda og AstraZeneca, en yfirvöld í Pyongyang fullyrtu að Norður-Kórea hefði fulla stjórn á faraldrinum með því að hafa lokað landa­mærum sínum kyrfilega í janúar 2020.

Nú er staðan hins vegar önnur og allsherjar­útgöngu­banni hefur verið komið á. Ríkis­miðlar greina frá því að Kim hafi boðað til neyðar­fundar um helgina þar sem hann sakaði embættis­menn í heilbrigðis­kerfinu um hálfkák og klaufa­skap við útdeilingu lyfja. Kim kallaði því til herinn og skipaði honum og dreifa lyfjum í höfuð­borginni.

Norður-Kórea á landamæri að Suður-Kóreu og Kína þar sem faraldurinn hefur verið að taka sig upp að nýju. Í Kína snýst baráttan við undir­afbrigði ómíkron-afbrigðisins og hefur útgöngu­bönnum verið komið á í stærstu borgum landsins. Yfirvöld í Suður-Kóreu hafa boðist til að senda hjálpar­gögn eftir þörfum, þar á meðal bóluefna­skammta, heilbrigðis­starfsfólk og lækninga­vörur.

Kim hefur ekki þegið boðið en hefur skipað sjálfan sig sem „yfirmann sjúkdóms­viðbragða“ og stendur fyrir nær daglegum neyðar­fundum sérstaks ráðs um faraldurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár