Yfir þúsund manns látnir í Nepal - Neyðarsöfnun hafin á Íslandi

Talið er að yfir þúsund manns hafi farist í jarð­skjálfta af stærðinni 7,8 sem reið yfir í Nepal klukkan rúmlega sex í morgun að íslenskum tíma. Ljóst er að tala látinna á eftir að hækka enn frekar, því margra er saknað eftir skjálftann. Nú vinna björgunar­sveitir og íbúar á svæðinu hörðum höndum að því að grafa fólk úr rústum bygginga, sem féllu margar hverjar eins og spila­borgir þegar skjálftinn skók Nepal.

Skjálftinn átti upptök sín mitt á milli tveggja stærstu borga landsins, Katmandú og Pokhara, en þetta var öflugasti jarð­skjálfti sem mælst hefur á svæðinu í áttatíu ár. Neyðar­ástandi hefur verið lýst yfir í Nepal, og fjöldi ríkja og helstu hjálpar­samtök heims heitið Nepölum aðstoð.

Grannríki Nepals fundu vel fyrir skjálftanum, en í Indlandi, Tíbet og Bangladess hefur verið tilkynnt um manntjón sökum hans. Þá létu að minnsta kosti þrettán lífið í snjóflóði við Everestfjall, en Íslendingarnir Vilborg Arna Gissurar­dóttir og Ingólfur Ragnar Axelsson, sem hyggjast klífa fjallið, eru bæði heil á húfi sem og fjórir aðrir Íslendingar sem vitað er um í Nepal.

Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að leggja fimm milljónir króna til hjálpar­starfsins í Nepal, þar sem starfs­menn og sjálfboða­liðar vinna baki brotnu við að aðstoða þolendur jarð­skjálftans mikla. Hægt er að styrkja Rauða krossinn með því að hringja í 904-1500 (framlag: 1.500 kr), 904-2500 (framlag 2.500 kr) eða 904-5500 (framlag 5.500 kr). Einnig er hægt að leggja fé inn á reikning Rauða krossins 0342-26-12, kt. 530269-2649.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár