Tíu breskir forstjórar fengu 32,2 milljarða króna í laun á árinu 2014

Forstjórar stærstu fyrir­tækja Bretlands fengu 183 sinnum hærri laun en meðal­verka­maðurinn í Bretlandi á árinu 2014. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá hugveitunni High Pay Centre sem birt var í gær.

Þar segir að kaup forstjóra þeirra 100 fyrir­tækja sem skráð eru í kaup­höllina í London (FTSE 100) hafi samtals verið 4.964 milljónir punda, rúmlega eitt þúsund milljarðar króna, á árinu 2014. Samanlögð laun forstjóranna 100 hafa hækkað um 17 prósent frá árinu 2010. Tíu hæstlaunuðustu forstjórnarnir voru samtals með 156 milljónir punda í laun, eða um 32,2 milljarða króna. Það þýðir að meðallaun hvers þeirra voru 3,2 milljarðar króna, sem þýðir að mánaðar­launin voru að meðaltali um 269 milljónir króna á mánuði.

Í skýrslunni kemur fram að hluthafar þeirra fyrir­tækja sem skráð eru í kaup­höllina í London hafi rétt til að koma á framfæri mótmælum vegna launa­kjara en einungis 6,4 prósent þeirra gerðu það að meðaltali á síðasta ári.

Í tilkynningu vegna útkomu skýrslunnar er haft eftir Deboruh Hargreaves, stjórn­anda hjá High Pay Centre, að launa­pakkar eins og þeir sem tíðkast hjá skráðum fyrir­tækjum í Bretlandi gangi mun lengra en það sem gæti talist skynsamlegt og nauðsynlegt við að umbuna og hvetja stjórn­endur. Líklegast sé að stjórn­skipan fyrir­tækjanna sé illa haldin af veik­leikum og hagsmuna­tengslum, með þessum afleiðingum.

Tíu launahæstu forstjórarnir eru:


10. Bob Dudley, for­stjóri BP: 9,29 millj­ónir punda (1.920 millj­ónir króna)

Bob Dudley, forstjóri BP, sem hét áður British Petroleum.

Bob Dudley, forstjóri BP, sem hét áður British Petroleum.
Bob Dudley, for­stjóri BP, sem hét áður British Petr­o­leum.
  1. Don Robert, fyrrum forstjóri Experian: 9,87 milljónir punda (2.040 milljónir króna)

  2. Ian Gorham, forstjóri Hargreaves Landsdown: 10,61 milljón punda (2.193 milljónir króna)

  3. Rakesh Kapoor, forstjóri Reckitt: 11,24 milljónir punda (2.323 milljónir króna)

  4. Antonio Horta-Osorio, forstjóri Lloyds bankans: 11,54 milljónir punda (2.385 milljónir króna)

  5. Tidjane Thiam, fyrrum forstjóri Prudential (nú forstjóri Credit Suisse bankans): 11,83 milljónir punda (2.445 milljónir króna)

Tidjane Thiam, fyrrum forstjóri Prudential (nú forstjóri Credit Suisse bankans).

Tidjane Thiam, fyrrum forstjóri Prudential (nú forstjóri Credit Suisse bankans).
Tidjane Thiam, fyrrum for­stjóri Pru­dential (nú for­stjóri Credit Suisse bank­ans).
  1. Peter Long, forstjóri The Tui Travel: 13,33 milljónir punda (2.755 milljónir króna)

  2. Erik Engstrom, forstjóri Relx Group: 16,18 milljónir punda (3.473 milljónir króna)

  3. Ben Van Beurden, forstjóri Royal Dutch Shell: 19,51 milljón punda (4.032 milljónir króna)

  4. Sir Martil Sorrell, forstjóri WPP: 42,98 milljónir punda (8.884 milljónir króna)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár