Þýskur sementsrisi fær 49 þúsund fermetra undir starfsemi í Þorlákshöfn

Þýski iðnrisinn HeidelbergCement ætlar sér að framleiða að minnsta kosti milljón tonn af íblöndunar­efnum í sement í Þorláks­höfn á hverju ári og hefur sótt um og fengið vilyrði fyrir úthlutun tólf atvinnu­lóða undir starfsemi sína í bænum.

Heidelberg fær úthlutað alls 12 lóðum undir starfsemi sína á nýju athafnasvæði í grennd við höfnina í Þorlákshöfn, sem verið er að stækka.
Heidel­berg fær úthlutað alls 12 lóðum undir starf­semi sína á nýju athafna­svæði í grennd við höfn­ina í Þor­láks­höfn, sem verið er að stækka. Mynd: Ölfus

Félagið Heidelberg Cement Pozzolanic Materials ehf., sem er hluti af einum stærsta steypu­fram­leiðanda heims, HeidelbergCement, hefur sótt um að fá úthlutað allnokkrum lóðum undir verksmiðju og tengda starfsemi í Þorláks­höfn. Skipulags­nefnd Sveitar­félagsins Ölfuss tók jákvætt í beiðnina á fundi sínum í síðustu viku.

Heidelberg ráðgerir, samkvæmt erindi sem nýlega var sent til sveitar­félagsins, að framleiða íblöndunar­efni í steypu, um 1 til 1,5 milljónir tonna á ári fyrst um sinn og flytja úr landi. Árleg velta starfseminnar er áætluð 10-15 milljarðar króna á ársgrundvelli og orku­þörfin er talin „svipuð og hjá lítilli stóriðju“. Störf við fram­leiðsluna eru sögð eiga að verða 60-80 talsins fyrsta kastið, en geti orðið enn fleiri með mögulegri stækkun verksmiðjunnar.

Stærsti eigandi HeidelbergCement er Þjóð­verjinn Ludwig Merckle, sem er samkvæmt Forbes númer 504 á listanum yfir ríkustu menn heims í dag, en eignir hans eru sagðar nema 5,1 milljarði bandaríkja­dala. HeidelbergCement er með starfsemi í yfir 60 löndum og voru starfs­menn félagsins á heimsvísu 53 þúsund talsins árið 2020.

HeidelbergCement er þátt­takandi í íslenskum byggingar­iðnaði, en fyrir­tækið er meirihluta­eigandi Hornsteins ehf., sem á fyrir­tækin BM Vallá, Björgun og Sements­verksmiðjuna.

Vilja að tekið verði „fast“ á umhverfisþáttum

Lóðirnar sem Heidelberg sótti um til sveitar­félagsins eru Hafnar­vegur 3, 5 og 7, Austur­bakki 1, 2, 3, 4 og 6, Hafnar­bakki 14, 16 og 18 og Bakki 2, en samanlögð stærð þessara lóða nemur rúmlega 49 þúsund fermetrum, samkvæmt lóðatöflu vegna deili­skipulags hafnar­svæðisins í Þorláks­höfn.

Skipulags- og umhverfis­nefnd sveitar­félagsins samþykkti á fundi sínum sem fram fór síðasta fimmtudag að lóðunum yrði úthlutað til Heidelberg, en vísaði málinu áfram til umsagnar framkvæmda- og hafnar­nefndar.

Í umsögn skipulags- og umhverfis­nefndar segir að nefndin sé „sérstak­lega áfram“ um að við breytingar á deili­skipulagi sem framundan eru „verði tekið fast á umhverfis­legum þáttum“. Nefndin segir að það komi ekki til greina að haug­setning jarðefna verði utandyra, eða að mengun svo sem rykmengun, hljóð­mengun eða önnur óþægindi stafi af starfseminni. Einnig segist nefndin telja mikilvægt að horft verði til getu innviða í Þorláks­höfn og nágrenni til að þjónusta starfsemina.

Sérstak­lega segir nefndin mikilvægt að huga að umferðar­málum og hefur hún falið starfs­mönnum sveitar­félagsins að kalla eftir áliti Vega­gerðarinnar á umferðar­málum tengdu verk­efninu og getu vega­kerfisins, þar sem sérstak­lega verði „kallað eftir yfirliti yfir nauðsynlegar breytingar svo sem á breikkun Þrengsla­vegar, gatna­mótum við Þorlákshafnarveg og klifur­rein við Skógarhlíða­brekku“.

Efnistaka úr námum á landi Kirkju sjöunda dags aðventista

Sagt var frá því í Morgun­blaðinu undir lok mars­mánaðar að námu­fyrirtækið Eden Mining kæmi að námu­vinnslu vegna verk­efnisins, en það félag hefur leigt námu­réttindi í móbergs­fjöllunum Litla-Sandfelli og Lamba­felli af Kirkju sjöunda dags aðventista.

Í dag er þegar náma í í báðum fjöllum, en sú í Litla-Sandfelli hefur verið lítið notuð undan­farin ár. Það mun hinsvegar breytast ef áform Eden Mining ganga eftir, en eins og Kjarninn fjallaði nýlega um leggur félagið upp með að vinna 15 milljónir rúmmetra af jarðefni úr fjallinu, sem mun smám saman hverfa úr lands­laginu gangi áformin eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár