Maður handtekinn í Kaupmannahöfn vegna hryðjuverkanna

Lögreglan í Kaupmanna­höfn handtók og ákærði í morgun mann sem grunaður er um aðild að hryðjuverka­árásunum í borginni fyrir hálfum mánuði. Þetta er þriðji maðurinn sem er hand­tekinn vegna málsins, auk þess sem lögregla skaut árásar­manninn Omar Abdel Hamid El-Hussein til bana daginn eftir árásirnar.

Lögreglan hefur þegar handtekið og ákært tvo aðra menn fyrir að hafa aðstoðað El-Hussein við að útvega vopn og fyrir að hafa hýst hann eftir árásirnar.

Samkvæmt heimildum danska ríkis­útvarpsins, DR, er maðurinn sem var hand­tekinn í morgun grunaður um svipaða aðild að málinu.

Tveir létust í hryðjuverka­árásunum í Kaupmanna­höfn 14. og 15. febrúar síðastliðinn. Omar El-Hussein réðst fyrst á fund í menningar­húsinu Krudttønden á Austurbrú, þar sem fram fór umræða um skop­teikningar, og svo á bænahús gyðinga á Krystalgade. Sænski skopmynda­teiknarinn Lars Vilk, sem var á fundinum í Krudttønden er farinn í felur eftir árásirnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár