Útskriftarmynd Óskars fer beint á Cannes

Óskar Kristinn Vignisson var að útskrifast úr Danska kvikmynda­skólanum og hefur útskriftar­myndin hans verið valin til þátttöku í Cinéfondation-flokknum á kvikmynda­hátíðinni í Cannes nú í júlí. Er þetta í fyrsta sinn í 18 ár sem útskriftar­nemandi í skólanum kemst beint á Cannes með útskriftar­verkefnið sitt.

Útskriftar­mynd Óskars Kristins Vignis­sonar frá Danska kvikmynda­skólanum, Frie Mænd, hefur verið valin til þátttöku á kvikmynda­hátíðinni í Cannes nú í júlí. Er þetta í fyrsta sinn í 18 ár sem útskriftar­nemandi í Danska kvikmynda­skólanum kemst beint á Cannes í Cinéfondation-flokknum. Um er að ræða sérstaka stofnun innan Cannes sem hefur það að markmiði að styðja upprennandi leik­stjóra. Árlega eru sýndar um 15 til 20 útskriftar­myndir sem valdar eru úr yfir 1.000 umsóknum frá kvikmynda­skólum um allan heim. Er þetta kómísk mynd um vini í vandræðum sem neyðast til að endur­skilgreina frelsi og hvað það þýðir að fara eigin leiðir. 

https://youtu.be/pSRkzmUY5hc

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár