Einn ríkasti maður Norðurlanda einn og yfirgefinn - Líður skelfilega

Markus Persson, sem varð einn ríkasti maður Norður­landa þegar hann seldi fyrir­tækið sem hann stofnaði, Minecraft, til Microsoft fyrir 2,5 milljarða Bandaríkja­dala, segir að honum hafi aldrei verr en nú, eftir að hann eignaðist alla þessa peninga.

Persson fjallar með opinskáum hætti um líðan sína á Twitter aðgangi sínum, og segir að hann sé í dag nær alveg einangraður og gangi illa að eiga eðlileg samskipti við fólk. Þeir sem áður voru vinir hans hafi margir hverjir snúið við honum baki og sumir séu reiðir út í hann fyrir að hafa selt fyrir­tækið sem hann stofnaði.

Persson, sem hefur orð á sér fyrir að vera afburða fær forritari, hefur lifað hátt frá því að hann fékk tæplega 300 milljarða króna fyrir fyrir­tækið, og stundað partýin óspart, samkvæmt Quartz.

„Þegar við seldum fyrir­tækið þá fór mesta vinnan í að tryggja hagsmuni starfs­manna, en þeir hata mig allir núna,“ segir Persson í einni Twitter færslunni. Þá segist hann hafa hitt yndislega konu sem hafi ekki viljað lífstílinn sem honum tilheyrði og valdi fremur að hitta „venju­legan“ mann.


The problem with getting everything is you run out of reasons to keep trying, and human interaction becomes impossible due to imbalance.


— Markus Persson (@notch) August 29, 2015

The problem with getting everything is you run out of reasons to keep trying, and human interaction becomes impossible due to imbalance. — Markus Persson (@notch) August 29, 2015


Found a great girl, but she's afraid of me and my life style and went with a normal person instead.


— Markus Persson (@notch) August 29, 2015

Hanging out in ibiza with a bunch of friends and partying with famous people, able to do whatever I want, and I've never felt more isolated. — Markus Persson (@notch) August 29, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár