Árni Páll: Viðræðuslit við ESB atburðarrás sem er lyginni líkust

„Þetta er atburðar­ráðs sem er lyginni líkust og sýnir ótrúlegan skort á sjálfs­trausti hjá ríkisstjórnni í þessu máli,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, um þá ákvörðun ríkis­stjórnarinnar að slíta viðræðum við Evrópu­sambandið án þess að þau slit hafi fengið þinglega meðferð. „Að hún skuli í laumu­spili reyna að breyta niður­stöðu Alþingis án þess að spyrja þingið sjálft er ótrúlegt, en það er vegna þess að ríkis­stjórnin óttast viðbrögð þings og þjóðar.“

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra afhenti nú rétt klukkan sex að íslenskum tíma formanni Evrópu­sambandsins, sem er utan­ríkis­ráðherra Lettlands, bréf um að ríkis­stjórn Íslands líti ekki lengur svo á að Íslands sé í hópi umsóknar­ríkja og að hún fari þess á leit við sambandið að það taki mið af því hér eftir.

Árni Páll segist fyrst hafa heyrt af tillög­unni í fréttum RÚV klukkan sex. „Þetta er tillaga sem hefur ekkert þjóðréttarlegt gildi og er ekki annað en niður­staða úr kaffispjalli nokkurra manna sem allir vissu fyrir að hafa ætlað sér að hafa þjóðarviljan í þessu máli að engu. Alþingi gaf umboð til viðræðna og Alþingi þarf að aftur­kalla það umboð til að Ísland teljist ekki lengur umsóknar­ríki. Þarna er líka verið að virða að vettugi þá skýru laga­skyldu um að það verði að hafa samráð við utan­ríkismála­nefnd varðandi allar meiriháttar ákvarðanir í utan­ríkismálum. Þeir telja þá líklegast að þetta sé ekki meiriháttar ákvörðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár