Stuðningsmenn Össurar sakaðir um smölun: „Fólki lofað öryggi á Íslandi í skiptum fyrir atkvæði í prófkjöri“

Gríðarleg ólga í Samfylk­ing­unni vegna próf­kjörsins í Reykjavík. Össur hafnar ásökunum.

Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands, sakar Össur Skarp­héðinsson, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, um að smala nýbúum og hælis­leitendum á stuðnings­manna­lista Samfylkingarinnar í Reykjavík til að fá atkvæði þeirra í prófkjöri. 

Þá segist Helga Vala Helga­dóttir, lögmaður og fyrr­verandi formaður Samfylkingar­félagsins í Reykjavík, hafa orðið vitni að því í próf­kjörum fyrir fjórum árum þegar erlendir borgarar staðfestu við túlk að þeim hefði verið lofaður ríkis­borgara­réttur gegn því að kjósa Össur.

Eins og Stundin greindi frá í gær hafa á annað hundrað innflytjenda verið skráð á svokallaðan stuðnings­manna­lista Samfylkingarinnar vegna prófkjara flokksins í Reykjavík. Þetta er um fimmtungur þeirra sem skráðir eru á lista „skráðra stuðnings­manna“ flokksins í Reykjavík, þeirra sem ekki eru félags­menn en vilja geta kosið í próf­kjörum. Um er að ræða fjölda fólks frá Austur-Evrópu, Afríku og Miðausturlöndum, þar á meðal fólk sem kom til Íslands sem hælis­leitendur. 

Svanur kristjánsson
Svanur kristjánsson stjórnmála­fræðingur

„Í Frétta­blaðinu í dag mældist fylgi Samfylkingarinnar 7,5%. Verði vinnu­brögð Össurar Skarphéðissonar við smölun nýbúa og hælis­leitenda látin viðgangast mun fylgið minnka enn frekar. Þessi vinnbrögð skiluðu Össuri naumum sigri í síðasta prófkjöri og munu gera það aftur ef ekkert verður að gert,“ skrifar Svanur Kristjánsson á Facebook-síðu sinni. Þá fullyrðir Helga Vala Helga­dóttir lögmaður á Facebook að fyrir fjórum árum hafi kjósendum í próf­kjörum Samfylkingarinnar verið lofað að þeir gætu fengið ríkis­borgararétt ef þeir styddu ákveðinn fram­bjóðanda. Þorvaldur Sverrisson markaðs­stjóri segir á sinni Facebook-síðu að þetta sé á vitorði allra þeirra sem komið hafi nálægt próf­kjörum Samfylkingarinnar.

Stundin hefur gert árangurs­lausar tilraunir til að ná tali af Össuri í dag, bæði í gsm-síma, í tölvu­pósti og á Facebook. Í frétt Vísis.is um málið kemur fram að hann vísi ásökunum Helgu Völu á bug í Facebook-skila­boðum til blaða­manns.

„Að sjálfsögðu ekki. Ég hef engum manni lofað slíku, hvorki víetnömskum né öðrum, og minnist þess ekki að hafa talað við mann af víetnömskum uppruna frá því 10 flótta­menn bjuggu á hæðinni fyrir neðan mig á Holts­götunni,“ er haft eftir Össuri sem bendir á að sömu ásakanir hafi komið upp fyrir fjórum árum. „Af hverju ætti að þurfa stjórn­málamann til að gera víetnama að ríkis­borgara? Hafi þeir dvalar­leyfi hér á landi njóta þeir allra réttinda, og geta orðið ríkis­borgarar einsog aðrir eftur tiltekna dvöl sk. einföldum reglum.“

Helga Vala Helgadóttir
Helga Vala Helga­dóttir lögmaður

Helga Vala segir í samtali við Stundina að þegar hún kom að prófkjöri flokksins fyrir fjórum árum hafi hún orðið vitni að því þegar nokkur fjöldi erlendra borgara staðfesti við túlk að þeim hefði verið lofaður ríkis­borgara­réttur gegn því að kjósa Össur Skarp­héðinsson í prófkjöri Samfylkingarinnar. „Ég er ekki að segja að hann hafi lofað því persónu­lega, en það gerði það að minnsta kosti einhver sem vildi veg hans vel í því prófkjöri,“ segir hún. Fleiri viðmælendur staðfesta þetta en samkvæmt heimildum blaðsins héldu margir útlendinganna að kosningin hefði snúist um hvort opnað yrði portúgalskt sendiráð á Íslandi.

Fjörugar umræður fóru af stað eftir að frétt Stundarinnar birtist í gærkvöldi á lokuðum hópi Samfylkingarinnar á Facebook. „Er það eitthvað annað en orðrómur að um smölun hafi verið að ræða? Ömurlegt ef fram­bjóðendur eru að standa í slíku!“ skrifar Sigurður Hólm Gunnarsson, fram­bjóðandi í próf­kjörinu í Reykjavík.

Sema Erla Serdar, sem býður sig fram í Kraganum, tekur í sama streng. „Ég þori að fullyrða að 120 innflytjendur taka ekki upp á því sjálfir - á einni viku - að skrá sig sem stuðnings­menn stjórn­málaflokks til þess að taka þátt í prófkjöri,“ skrifar hún. 

Þá segir Sema að ekki sé hægt að túlka frétta­flutning Stundarinnar öðruvísi en svo að kjörskrá Samfylkingarinnar sé komin í hendur blaða­manna. „Það eru trúnaðar­upplýsingar og brot á persónu­verndar­lögum að láta slíkar upplýsingar af hendi,“ skrifar hún, en ekki eru allir sammála um þá laga­túlkun.

Samfylkingin
Samfylkingin Mynd tengist frétt ekki beint.

Helga Vala leggur einnig orð í belg á spjallinu og skrifar: „Ef þetta er eins og gert var fyrir fjórum árum (...) þá var fólki lofað öryggi á Íslandi í skiptum fyrir atkvæði í prófkjöri. Það kalla ég að níðast á fólki sem á um sárt að binda því það á ekki öryggi í því landi sem það vill búa og ekki í sínu heimaríki.“ 

Þá skrifar Rósa Guðrún Erlings­dóttir að í próf­kjörinu 2013 hafi nákvæmlega sama staðan komið upp. Þetta sé ástæðan fyrir því að hún geti ekki hugsað sér að koma nálægt framkvæmd opins prófkjörs aftur. „Merki­legur skilningur á lýðræði að misnota fólk með þessum hætti,“ skrifar hún. 

Stundin hefur óskað eftir því að fá gefna upp tölu þeirra sem skráðir eru á stuðnings­manna­lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins eru þetta um 570 manns. Þegar haft var samband við skrif­stofu Samfylkingarinnar var blaða­manni bent á að senda Kristjáni Guy Burgess, framkvæmda­stjóra flokksins, tölvupóst. Hann segist ekki geta gefið upp fjölda þeirra sem aðeins eru skráðir sem stuðnings­menn. Hins vegar séu 5780 á kjörskrá í Reykjavík. „Sú tala nær yfir bæði þá sem hafa skráð sig sem félaga og stuðnings­menn. Ekki eru gefnar upp sundur­greiningar eða tíma­setningar á skráningum heldur unnið með þetta sem eina skrá,“ skrifar hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár