Kínverjar kaupa sig inn í stærstu ferðaskrifstofu Bretlands

Kínverski ferða­risinn Fosun hefur keypt fimm prósent hlut í bresku ferða­skrif­stofunni Thomas Cook, sem er stærsta ferða­skrifstofa Bretlands. Kínverska félagið hefur verið að koma sér betur fyrir á evrópskum ferða­þjónustu­markaði að undan­förnu en það keypti franska félagið Club Med í síðasta mánuði.

Fosun greiddi 91 milljón punda fyrir fimm prósent hlutinn í Thomas Cook, eða sem jafn­gildir rúmlega átján milljörðum króna, að því er fram kemur á vef breska ríkis­útvarpsins BBC.

Kínverski ferða­þjónustu­markaðurinn hefur vaxið ógnarhratt á undan­förnum árum, samhliða stækkun milli­stéttar í landinu sem ferðast mikið um heiminn. Fosun hyggst efla þjónustu sína við þennan hóp og selja honum skipulagðar ferðir um heiminn, og einnig selja íbúum Evrópu ferðir til Asíu. Talið er að milli­stéttin í Kína vaxi um sem nemur um þrjátíu milljónum á hverju ári, eða sem nemur íbúa­fjölda sem jafn­gildir rúmlega öllum íbúa­fjölda Norður­landanna.

Kína er fjölmennasta ríki heims, með 1,4 milljarða íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár