Þegar þú leggst til hvílu með ísbirni

– og sitthvað annað smálegt um Steingrím J. Sigfússon

Við létum þar staðar numið síðast við myndir okkar af Steingrími J. Sigfús­syni, að þar væri ósagt frá stærstu málum á ferli hans.

Formanns­kjöri í Alþýðu­bandalaginu. Stofnun Vinstri grænna, áköfu daðri við Sjálfstæðis­flokkinn, ríkis­stjórnar­myndun eftir Hrun, þar sem hann horfði á þing­flokkinn sinn þunn­skipast smám saman og ríkis­stjórnina verða að minnihluta­stjórn. Og einu litlu Icesave-máli.

En af því að hér er ekki ætlunin að skrifa ævisögu Steingríms – og þolinmæði okkar er ekki takmarka­laus – hlaupum við nú hratt yfir sögu.

Tap í formannskjöri

Þegar Ólafur Ragnar Grímsson lét af embætti sem formaður Alþýðu­banda­lagsins árið 1995 upphófst erfiður formanns­slagur í flokknum. Hann háðu Margrét Frímanns­dóttir, sem hafði verið þing­flokks­formaður, og Stein­grímur, sem hafði líka verið þing­flokks­formaður, en einnig ráðherra í þrjú ár og vara­formaður flokksins.

Í síðustu grein nefndum við sérkennilegt mál, þar sem Stein­grímur sem land­búnaðar­ráðherra lagðist í óvenju­lega herferð gegn eigin­manni Margrétar, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár