Máli landeigenda Drangavíkur gegn Vesturverki og Árneshreppi vísað frá

Deila vegna virkjana­framkvæmda á Vestfjörðum kom inn á borð dómstóla.

Héraðs­dómur Vestfjarða vísaði í dag frá dómsmáli hluta land­eigenda Dranga­víkur á Ströndum á hendur Vestur­Verki ehf. og Árnes­hreppi.

Dómurinn hefur ekki verið birtur enn á vefsíðu Héraðs­dóms Vestfjarða, en í tilkynningu frá Vestur­verki segir að dómurinn telji það ósannað að eigendur Dranga­víkur eigi það land sem framkvæmdir á svæðinu - sem deilan snýst um - varða.

Land­eigendur höfðuðu mál gegn Vestur­verki og Árnes­hreppi í lok sumars og kröfðust þess að framkvæmda­leyfi Vestur­verks, fyrir framkvæmdum á Ófeigs­fjarðar­heiði vegna Hval­árvirkjunar, yrði fellt úr gildi sem og deili­skipulag vegna framkvæmd­anna. Eru því stefnendur í málinu ekki taldir hafa lögvarða hagsmuni vegna málsins.

Dómurinn telur jafnframt að ekki hafi verið sýnt fram á að röskun verði á hagsmunum eigenda Dranga­víkur sem réttlætt geti aðild þeirra að málinu, að því er segir í tilkynningu frá Vestur­verki.

Dómurinn dæmdi stefnendur til þess að greiða Árnes­hreppi og Vestur­verki ehf. kr. 600.000,-, hvorum fyrir sig, í máls­kostnað vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár