Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider birtir regulega lista yfir tíu mikilvæga hluti sem eru að gerast í heiminum hverju sinni. Á lista dagsins í dag kennir ýmissa grasa eins og venjulega, allt frá áfram­haldi á spillingar­málum hjá FIFA og í hagvaxtar­spár fyrir heiminn.


  1. Chuck Blazer, fyrrum stjórn­andi hjá FIFA og maðurinn sem hjálpaði lögreglunni í rannsókn á spillingunni þar, hefur viðurkennt að hafa hlutast til um og þegið mútur fyrir tvær mismun­andi heims­meistara­keppnir í fótbolta.

  2. Staðfest hefur verið að minnst 65 hafi látist þegar skemmtiskipi hvolfdi á Yangtze-ánni í Kína á mánudag. Enn ganga björgunar­störf illa.

  3. Yfir 700 skólum var lokað í Suður-Kóreu í dag vegna ótta við öndunarfæra­sjúkdóminn MERS (Middle East Respiratory Syndrome). 35 manns hafa þegar smitast af sjúk­dómnum.

  4. Úkraínski herinn og uppreisnar­menn sem njóta stuðnings Rússa börðust í fyrsta stóra bardaganum í nærri þrjá mánuði í gær, eftir að uppreisnar­menn réðust á bæinn Maryinka.

  5. Eftir fund með hátt­settum embættis­mönnum ESB í gærkvöldi sagði Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, að samkomulag væri í augnsýn og að Grikkir myndu ná að borga Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum afborgun af láni á föstu­daginn.

  6. Nú er komið í ljós að minnst 51 rannsóknar­stofa fékk fyrir mistök sendan lifandi miltis­brand frá bandaríska hernum. Búist er við því að þessi tala fari hækkandi eftir því sem rannsókn málsins heldur áfram.

  7. Bráðabirgða­niðurstöður rann­sóknar í Kaliforníu bendir til þess að tæring í pípum hafi valdið því að ríflega 100 þúsund gallon af olíu láku út í sjóinn í síðasta mánuði.

  8. Indland og Banda­ríkin hafa ákveðið að fara í umfangs­mikið varnar­samstarf. Þetta er viðbragð við því að Kínverjar auka umsvif sín í Indlands­hafi um þessar mundir.

  9. Suður-Kóra hóf prófanir í gær á eldflaugum sem verður hægt að skjóta á alla hluta Norður-Kóreu.

  10. OECD lækkaði hagvaxtarspá sína fyrir heiminn frá 4% í 3,1% árið 2015 og úr 4,3 til 3,8 prósenta á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár