Rússneska ríkisstjórnin flokkar Ísland á meðal óvinveittra þjóða

Ísland er nú komið á lista þjóða sem ríkis­stjórn Rússlands telur vera óvin­veittar sér. Þetta þýðir meðal annars að íslenskir aðilar munu ekki tekið ný lán í rúblum nema að fengnu vilyrði stjórn­valda.

Kremlarborg í Moskvu
Kreml­ar­borg í Moskvu Mynd: A.Savin/Wikimedia Commons

Ríkis­stjórn Rússlands hefur skilgreint Ísland sem „óvin­veitta þjóð,“ en með þeirri skilgreiningu verður Íslendingum meinað að eiga í nýjum fjármála­gerningum og fasteigna­viðskiptum við rússneska aðila án samþykkis. Sömuleiðis leyfir rússneska ríkis­stjórnin þarlendum lánþegum í erlendum gjaldeyri að borga upp lánin sín í rúblum, ef kröfu­hafarnir eru frá óvin­veittum löndum.

Rússneska ríkis­frétta­stofan TASS greindi frá tilkynningu stjórn­valda fyrr í dag, en þar gaf rússneska ríkis­stjórnin út lista yfir þjóðum sem hún taldi vera óvin­veittar sér. Auk Íslands voru þar öll aðildar­ríki Evrópu­sambandsins og flestar aðrar Evrópu­þjóðir, Japan, Suður-Kórea, Ástralía, Míkrónesía, Nýja-Sjáland, Singapúr og Tævan.

Samkvæmt TASS munu rússneskir skuldunautar ekki þurfa að greiða upp erlend lán sín, að andvirði 10 milljónum rúblum eða meira á mánuði, í erlendum gjaldeyri ef kröfu­hafarnir eru frá óvin­veittum ríkjum. Þessi upphæð jafn­gildir um 9,8 milljónum íslenskra króna.

Frétta­stofa Reuters hefur einnig greint frá því að aðilar frá ríkjunum sem Rússland telur vera óvinveitt sér munu nú þurfa sérstakt leyfi til að taka lán eða eiga í fasteigna­viðskiptum í Rússlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár