Þarf að kjósa aftur um forseta FIFA, hvorugur frambjóðandinn fékk nægilega mörg atkvæði

Það þarf að kjósa aftur um hver verður forseti FIFA þar sem hvorugur fram­bjóðandinn til embættisins fékk 2/3 hluta atkvæða í kosningunni sem fór fram í dag. Í síðari kosningunni mun nægja að fá meirihluta atkvæða til að vinna. Í framboði voru, og eru, Sepp Blatter, hinn 79 ára gamli sitjandi forseti FIFA, og jórdanski prinsinn Ali bin al Hussein. Blatter fékk 133 atkvæði en al-Hussein 73.

Í miðvikudag voru níu hátt­settir menn innan FIFA hand­teknir og ákærðir í Banda­ríkjunum fyrir mútuþægni, peninga­þvætti og fleira. Síðan þá hafa öll spjót staðið að Blatter, sem hefur neitað að draga framboð sitt til baka þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um það. Mikill meirihluta evrópskra knattspyrnu­sambanda, þar á meðal KSÍ, höfðu lýst því yfir að þau ætluðu ekki að kjósa Blatter. Michel Platini, forseti knattspyrnu­sambands Evrópu, UEFA, sagði á blaðamanna­fundi í gær að nóg væri komið. „Fólk vill ekki Sepp Blatter lengur og ég vil hann ekki lengur heldur. Ég hef alltaf sagt að við viljum að FIFA sé sterkt en FIFA er ekki sterkt lengur. Ég er enn að reyna að sannfæra nokkur evrópsk knattspyrnu­sambönd sem eru ekki alveg sannfærð."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár