DV kemur Davíð til varnar: „Ótrúlegt hvað menn leyfa sér að segja“

Frétta­menn RÚV gagn­rýndir harðlega á þeim grund­velli að Davíð Oddsson „og fjölmargir aðrir fyrr­verandi stjórn­málamenn“ hafi tjáningar­frelsi

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson DV bendir á að rit­stjór­inn hafi tján­ing­ar­frelsi. Mynd: Mbl.is

DV tekur upp hanskann fyrir Davíð Oddsson, ritstjóra Morgun­blaðsins og fyrr­verandi forsætis­ráðherra, í nafnlausu sandkorni sem birtist í blaðinu í dag. 

„Davíð Oddsson sendi fréttastofu RÚV pillu í Reykja­víkurbréfi og fréttamenn RÚV hafa brugðist ókvæða við og kallað forsætis­ráðherrann fyrr­verandi öllum illum nöfnum á samskipta­miðlum. Er í raun ótrúlegt hvað menn leyfa sér að segja,“ segir þar. Þá er tekið fram að Davíð og „fjölmargir aðrir fyrr­verandi stjórn­málamenn“ hafi tjáningar­frelsi. 

„Óháð öllu þá hefur Davíð Oddsson vitaskuld sama rétt til þess að tjá sig og þeir sem starfa við fjölmiðla og fjölmargir aðrir fyrr­verandi stjórnmálamenn. Og starfs­menn ríkisfjölmiðils ættu að taka gagnrýni af aðeins meiri stillingu. Þeir eru jú að vinna fyrir landsmenn alla,“ segir í sandkorni DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár