Ótrúlegar hagnaðartölur Apple - 1.800 milljarðar á þremum mánuðum

Hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple hagnaðist um 13,5 milljarða Bandaríkja­dala, jafnvirði um 1.800 milljarða króna, á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta er methagnaður fyrir þessa mánuði ársins, en heildar­tekjur fyrir­tækisins á þessum þremur mánuðum námu 58 milljörðum Bandaríkja­dala.

Væntingar sérfræðinga á markaðnum voru þær að heildar­tekjur yrðu 56 milljarðar Bandaríkja­dala, en á næstu mánuðum, það er fram til 1. júní, er búist við því að heildar­tekjur verði 46 til 48 milljarðar Bandaríkja­dala.

Helsta tekjulind fyrir­tækisins þessi misserin eru iPhone símarnir, en aðrar vörur, eins og iPad spjald­tölvan og snjall­úrin, hafa einnig haldið áfram að seljast vel, og sér ekki fyrir endann á aukningunni, að því er fram kemur í umfjöllun Inc.com.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár