Teitur Björn nýr aðstoðarmaður Jóns

Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra hefur ráðið Teit Björn Einarsson, lögfræðing og vara­þingmann Sjálfstæðis­flokksins, sem nýjan aðstoðar­mann.

Teitur Björn Einarsson, nýr aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar.
Teitur Björn Ein­ars­son, nýr aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar. Mynd: Aðsend

Teitur Björn Einarsson, lögfræðingur og vara­þingmaður fyrir Sjálfstæðis­flokkinn, hefur verið ráðinn sem aðstoðar­maður Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra. Þetta stað­festir Brynjar Níelsson, annar aðstoðar­maður Jóns, í samtali við Kjarnann.

Teitur var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðis­flokkinn í Norðvestur­kjördæmi árið 2016, en hann hefur verið vara­þingmaður flokksins frá árinu 2017. Í síðustu kosningum var hann í þriðja sæti á lista flokksins í Norðvestur­kjördæmi.

Þetta er ekki fyrsta starf Teits sem aðstoðar­maður, en á árunum 2014-2016 var hann aðstoðar­maður Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra. fyrir það starfaði hann hjá lögmanns­stofunum LOGOS og Opus, auk þesss sem hann var í forsvari fyrir fisk­vinnslu­fyrirtækið Eyrarodda hf. á Flateyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár