Kristjón kemst aftur í fréttir fyrir ummæli um „Hamas rottur“

Kristjón Bene­dikts­son, mað­ur­inn sem hreytti orð­unum „Hamas rottur“ í palest­ínska flótta­menn sem mót­mæltu fyrir framan Alþingi á þriðju­dags­morgun, segir skýra ástæðu fyrir ummælum sínum. Einn Palest­ínu­mann­anna, Naji Asar, seg­ist hafa þurft að svara fyrir sig.

Myndbandið „Ef þú ætlar að birta myndband af mér frá einhverjum Hamas-liðum þá stefni ég þér, þá stefni ég ykkur alveg í hvelli,“ tjáir Kristjón blaðamanni. Vísir birti myndbandið í gær en andlit Kristjóns var máð út.

Karl­mað­ur­inn sem gekk inn í tjald Palest­ínu­manna fyrir framan Alþing­is­húsið á þriðju­dags­morgun, kall­aði þá Hamas rottur, sagði þeim að hann stæði hund­rað pró­sent með Ísrael og að þeir ættu að fara heim til sín heitir Kristjón Bene­dikts­son. Hann hefur áður kom­ist í fréttir fyrir ummæli sem hafa fallið illa í kramið hjá þeim sem hann hefur látið þau falla um.  

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­kona Fram­sóknar, til­kynnti Kristjón til lög­reglu árið 2018 fyrir hót­anir í hennar garð eftir að hann lét eft­ir­far­andi ummæli falla á Facebook: „Það ætti að tjarga hana og fiðra og hengja uppí næsta ljósa­staur svona eins og í sól­ar­hring, þennan við­bjóðs­lega gyð­inga­hat­ara!“

Sama ár komst hann í frétt­irnar fyrir að birta mynd af sér­fræð­ingi á skrif­stofu Borg­ar­stjóra á Facebook, konu sem hafði kallað Jón Steinar Gunn­laugs­son hæsta­rétt­ar­lög­mann krípí, og láta falla eft­ir­far­andi ummæli: 

„Þessi er sér­fræð­ingur á skrif­stofu Borg­ar­stjóra [...] Ein af …

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Alveg furðulegt að svona Nazisti sé að verja Ísraelsk yfirvöld?
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Gott hjá ykkur að nafngreina þetta siðblinda, svikula, og þjófótta skítseyði Kristjón.
    Skjóni eins og hann var kallaður á sínum uppvaxtar árum.
    Hann er óforbetranlrgur (Pathalogical), lygari ofan í allt annað.
    4
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Þeir standa með Hamas!! ISIS er sami hlutur. Hvaða meðvirkni er í gangi? Útryming gyðinga er ekki frelsisbarátta né réttlætanlegt viðhorf nokkurs manns. Kristjón er ruglaður en hinir eru verri, margfalt verri.
    -9
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Kristjón er Nazisti! Ekki voru þeir vinir hér áður?
      3
  • Björg Sverrisdóttir skrifaði
    Það er skelfilegt að hugsa til þess að svona ofbeldisfullir íslendingar geti gengið lausir og áreitt friðsamlegt fólk, í einhverri geðsveiflunni. Þetta þarf að laga og búa geðfötluðum stað þar sem þeir geta barið trommur !!!
    15
  • Axel Axelsson skrifaði
    sorglegt . . .
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár