Stórefast um að smyglarar láti segjast – Rúandaleiðin líkleg til að mistakast

Að gera samn­ing við Rúanda um að taka við fólki sem leitar hælis í Bret­landi er ekki heil­brigð skyn­semi líkt og for­sæt­is­ráð­herr­ann vill meina, segir fram­kvæmda­stjóri mann­rétt­inda­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Volker Türk, framkvæmdastjóri mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna
Volker Türk, fram­kvæmda­stjóri mann­rétt­inda­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna Mynd: EPA

Volker Türk, fram­kvæmda­stjóri mann­rétt­inda­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna hvetur bresku rík­is­stjórn­ina til að end­ur­skoða áætl­anir sínar um að senda hæl­is­leit­endur til Rúanda. Hann minnir á að útvistun á fólki á flótta hafi áður verið reynd og hafi endað með „mjög ómann­eskju­legri“ með­ferð á flótta­fólki.

Rishi Sunak, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að áformin séu byggð á „heil­brigðri skyn­semi“ en Türk hafnar því alfarið og segir að fyr­ir­ætl­an­irnar séu hæpnar bæði laga­lega og sið­ferð­is­lega. Þá séu þær rán­dýrar og muni að auki ólík­lega skila þeim árangri sem stjórn­völd stefna að sem er að fækka ferðum fólks í leit að hæli yfir Ermar­sundið. Frá því að áætl­anir um að senda bróð­ur­part­inn af hæl­is­leit­endum sem koma til Bret­lands bein­ustu leið upp í flug­vél og til Rúanda, þar sem þeir geta sótt um hæli eða beðið nið­ur­stöðu í hæl­is­um­sókn í Bret­landi, hefur fólki sem fer á bátum yfir Ermar­sundið til Bret­lands í leit að betra lífi haldið áfram að fjölga. Það er einmitt þver­öf­ugt við það sem rík­is­stjórnin hélt fram að myndi ger­ast.

Bresk stjórn­völd hafa gert 140 millj­óna punda samn­ing við Rúanda um að taka við flótta­fólk­inu. Hins vegar hafa stjórn­völd í Rúanda nú sagt að þau geti í augna­blik­inu tekið við um 200 mann­eskjum frá Bret­landi en það er innan við 0,5 pró­sent af þeim fjölda sem komið hefur til Bret­landseyja yfir Ermar­sundið það sem af er ári.

„Þú getur ekki útvi­stað ábyrgð þinni til ann­ars ríkis líkt og bresk stjórn­völd hyggj­ast gera,“ segir Türk í sam­tali við The Guardian. „Þetta vekur alvar­legar áhyggjur – bæði út frá alþjóð­legum mann­rétt­inda­lögum og alþjóð­legum lögum um fólk á flótta.“ Hann hvetur stjórn­völd í Bret­landi til að end­ur­skoða ákvörðun sína.

Sagan

Eitt leið­ar­stef í kynn­ingu breskra stjórn­valda á áformum sínum hefur verið að ítreka að til­gangur sé að fást við smyglar­ana sem koma fólk­inu til Bret­lands, oft á litlum og hættu­legum bátum.

Türk bendir hins vegar á að hægt sé að fara aðrar leiðir í bar­átt­unni gegn smygl­ur­unum en að flytja hæl­is­leit­end­urna inn í miðja Afríku því slíkt tryggi ekki rétt­indi og vernd fólks á flótta. Líklegra sé að þessi mark­mið aðgerð­anna eigi hrein­lega eftir að mis­takast. Að smygl­ar­arnir eigi áfram eftir að starfa og fólk eigi áfram eftir að neyð­ast til að þiggja aðstoð þeirra. Að senda fólk í við­kvæmri stöðu svo til Rúanda er ekki væn­legt til árang­urs. „Því sagan sannar það,“ segir hann og bendir á hvað Ástralar reyndu að gera með því að senda hæl­is­leit­endur í flótta­manna­búðir á eyjur – allt til að letja aðra til að leita hælis. Á eyj­unum voru mann­rétt­inda­brot dag­legt brauð og að lokum dæmdi hæsti­réttur Ástralíu þessa útvistun stjórn­valda ólög­lega.

„Framkoma í garð hæl­is­leit­enda á eyj­unum Nauru og Manus var mjög, mjög ómann­eskju­leg,“ segir Türk.

Í sumar stóð til að senda fyrsta hóp­inn frá Bret­landi og til Rúanda. Fólk var komið um borð í flug­vél­ina þegar dóm­stólar gripu inn í og kyrr­settu hana. Látið var svo reyna á lög­mæti þess að flytja fólkið úr landi fyrir dóm­stólum. Og nið­ur­staðan er sú að aðgerð­irnar stand­ist lög. Þar með er ekki víst að af þeim verði því nið­ur­stöðu lægra dóms­stigs hefur verið áfrýjað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár