Bændur þurrka upp vatnslindir í Kaliforníu

Þurrðinni sem hefur plagað Kaliforníu undan­farin fjögur ár virðist ekki ætla að ljúka í nánustu framtíð. Vatns­skortinn má rekja til minni úrkomu, hærra hitastigs og styttra regn­tímabils. Í nýlegri skoðana­könnun sem gerð var í Kaliforníu­ríki svöruðu 94 prósent viðmælenda að þeir töldu ástandið alvaralegt og þriðjungur studdi vatns­skömmtun.

Þrátt fyrir að íbúar sammælist um alvara­leika málsins er meðal­neysla vatns á mann í borgum Kaliforníu 674 lítrar á dag, sem er 40 prósent meira en á hvern íbúa í New York og rúmlega tvisvar sinnum meira en í Sydney. Þrátt fyrir mikla eftir­spurn og dvínandi framboð kosta þessir 674 lítrar einungis um 80 sent eða rúmlega 100 íslenskar krónur miðað við núverandi gengi. Gamlar reglur og lög sem voru sett til að tryggja vatsndreifingu um ríkið ýta verðinu niður og kynda undir ofneyslu.

Hagfræðingar hafa bent á misræmið í því að halda vatsnverði svo lágu þrátt fyrir vatns­skortinn en lítill pólitískur vilji virðist vera til staðar til að hækka verðið. Þess í stað er leitað annarra leiða til að bregðast við þurrðinni. Veitinga­staðir er hvattir til að afgreiða ekki vatn og borgar­búar hvattir til að vökva ekki garðana sína.

Jerry Brown, ríkis­stjóri í Kaliforníu, setti lög í byrjun apríl sem neyðir vatns­veitur að minnka dreifingu á vatni um 25 prósent og sagði að „fólk verði að átta sig á því að við lifum á nýrri öld“. Gagnrýnis­raddir benda á að nýju reglurnar gilda ekki um landbúnað sem notar 80 prósent af vatninu en skilar aðeins tveimur prósentum af vergri lands­framleiðslu í Kaliforníu.

Sérfræðingar hafa bent á að með því að minnka vatns­freka ræktun (eins og möndlur, bómul, og refasmára) og notkun óhagkvæmra vökvunar­aðferða væri hægt að minnka vatns­neyslu svo hún verði ásættanleg. Margir bændur virðast ekki taka það í mál og halda áfram að reyna að rækta þessar vatns­freku plöntur á nýjum ekrum á meðan þær gömlu þorna upp.

Margir stjórn­mála- og embættis­menn hafa lýst yfir þeirri skoðun að nýsköpun muni reynast lausnin að þessu vandamáli. Kalifornía er þekkt fyrir öflugt frumkvöðla­samfélag og nýsköpun. Helsta vandamál fylkisins virðist hinsvegar vera stjórnmálalegt og efnahagslegt frekar en tæknilegt. Þó það sé óvíst hvort loftslags­breytingar séu aðalorsök þurrðarinnar er samhljómur meðal loftslags­vísinda­manna að jarð­hlýnun muni auka áhrif hennar. Þetta er því ekki tíma­bundið vandamál heldur mun Kalifornía þurfa að aðlagast breyttum aðstæðum og þurrara loftslagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár