Greenqloud fær 500 milljóna fjárfestingu

Athafna­konan Kelly Ireland hefur fjárfest í Greenqloud og segist í tilkynningu spennt fyrir fram­haldinu.

Íslenska hugbúnaðar­fyrirtækið Greenqloud hefur fengið nýja hluthafa í félagið, en það er athafna­konan Kelly Ireland. Hún leggur félaginu til fjórar milljónir Bandaríkja­dala, jafnvirði tæplega 500 milljóna króna, og hefur Kelly einnig tekið sæti í stjórn félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Greenqloud.

Greenqloud hefur verið í örum vexti síðan félagið hætti rekstri hýsingar­þjónustu og færði allan fókus á þróun hugbúnaðarins Qstack, sem stýrir og eykur aðgengi notenda að miðlægum tölvu­kerfum fyrir­tækja. Síðan Qstack var kynnt árið 2014 hafa leiðandi fyrirtæki á heimsvísu hafið notkun á hugbúnaðnum t.d. í fjármála-, leikja- og tækni­iðnaði, sem og í líftækni og heibrigðisþjónustu.

„Þessi félög nota Qstack til að einfalda rekstur upplýsinga­tæknikerfa sinna ásamt því að auka fram­leiðni, bæði rekstrar­teyma og notenda þeirra kerfa. Þessum góða árangri hefur fylgt athygli frá þeim fyrir­tækjum sem teljast leiðandi í hátækni­iðnaðinum og leitt af sér samstarf Greenqloud við félög eins og Microsoft, VMware, Hewlett Packard Enterprise, Netapp og Hitachi," segir í tilkynningunni.

Í stjórn Greenqloud sitja nú Guðmundur Ingi Jónsson (stjórnar­formaður); Kelly Ireland; Birgir Már Ragnarsson; Þorlákur Traustason og Egill Másson. Aðal­eigendur fyrir­tækisins eru Kelly Ireland; Keel Invest, Inc; Nýsköpunar­sjóður Íslands og Novator ásamt smærri fjár­festum, stofn­endum og starfs­fólki. „Ég kynntist Greenqloud fyrir um 18 mánuðum síðan og hef fylgst vel með þróun félagsins síðan þá,” segir Kelly Ireland. „Greenqloud hefur sýnt að það er leiðandi fyrirtæki í hugbúnaðar­þróun á þessum markaði. Varan þeirra Qstack, sýnir ekki aðeins að þau geta skilað nýjum lausnum hratt, heldur jafnframt að þau hafa áttað sig á því frá upphafi, að OpenStack mun ekki uppfylla þær kröfur skýja­lausnar sem þarf til að geta þjónað upplýsinga­tækni­deildum fyrir­tækja,“ segir Kelly í tilkynningu.

Kelly Ireland er stofnandi og framkvæmda­stjóri CB Technologies. Kelly hefur starfað í upplýsinga­tækni­geiranum síðan 1976 og starfað sem endur­söluaðili síðan 1984. „Samfara miklum breytingum í upplýsinga­tækninni árið 2001, sá Kelly þörf á markaðnum fyrir virðis­aukandi endur­söluaðila með nýja nálgun og stofnaði í fram­haldinu CB Technologies með breyttum áherslum en áður höfðu sést í þeim iðnaði. CB Technologies var ekki aðeins stofnað til að bjóða uppá fjölbreyttann stuðning við viðskipta­vini félagsins, heldur einnig til að bjóða uppá starfsmanna­vænt umhverfi sem lagði áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs," segir í tilkynningu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár