Florealis nær í 50 milljón króna fjármögnun

Kolbrún Hrafnkelsdóttir, forstjóri Florealis, er hér fyrir miðju.
Kolbrún Hrafn­kels­dóttir, for­stjóri Flor­ealis, er hér fyrir miðju.

Íslenska fyrir­tækið Florealis, sem sérhæfir sig í þróun og mark­aðsetningu á skráðum jurta­lyfjum, hefur tryggt sér 50 milljón króna fjár­mögnun. Að fjár­festingunni standa sérhæfðir fjár­festar úr lyfja­geiranum auk engla­fjárfesta. Þetta er önnur lota fjár­mögnunar sem Florealis hefur farið í gegnum því fyrir­tækið hafði áður tryggt sér sömu fjárhæð í frum­fjármögnun snemma árs 2014.

Florealis hét áður Herberia og tók þátt í Startup Reykjavík hraðalnum árið 2013. Fyrir­tækið sérhæfir sig í þróun og markaðs­setningu á skráðum jurta­lyfjum við vægum algengum sjúkdómum. Jurtalyf eru viðurkennd lyf sem framleidd eru úr virkum náttúru­efnum samkvæmt sömu gæða­stöðlum og hefð­bundin lyf.

Kjarninn fjallaði um Florealis/Herberia í umfjöllun sinni um Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn árið 2014.

Þetta eru ekki einu gleðitíðindinn sem Florealis hefur fengið að undan­förnu. Í lok janúar hlaut Kolbrún Hrafnkels­dóttir, forstjóri og stofnandi fyrir­tækisins, Hvatningar­verðlaun Félags kvenna í atvinnu­rekstri (FKA). Í niður­stöðu FKA sagði að Kolbrún væri braut­ryðjandi á sínu sviði hérlendis „og fyrirmynd margra ungra kvenna í lyfja­geiranum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár