Kjarninn mælir með... Everest, Ronaldo og „kerfið“

Við lifum sögulega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlendis. Ritstjórn Kjarnans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjallanir sem að mati ritstjórnar eru vandaðar, áhuga­verðar og skemmtilegar, hver með sínum ólíka hætti.

Hvernig kemst maður á topp Everest? - The Washington Post.


Það er alltaf gaman þegar blaða­menn og mynd­rit­stjór­arar stærstu fjöl­miðla heims­ins gefa sér tíma til þess að setja málin fram með metn­að­ar­fullum hætti. Það er óhætt að segja að Washington Post hafi gert það í umfjöllun sinni um göngur og klifur á Everest, hæsta fjall jarðar. Grafík, texti, hljóð­við­töl og myndir. Allt sett fram með metn­að­ar­fullum hætti, til þess að koma hlut­unum sem best til skila.

Áhugaverð og flott umfjöllun.

Gleðilega páska Grenada! Ronaldo vs Messi - The Economist.


Portú­gal­inn Cristiano Ronaldo, knatt­spyrnu­maður árs­ins hjá FIFA, hélt upp á Páskadag með því að skora fimm mörk í 9-1 sigri Real Madrid á Grenada. Ronaldo var kom­inn með þrennu í hálf­leik, og bætti svo við tveimur mörkum í seinni hálf­leik.

Að mati breska efnahags­tímaritsins The Economist er Ronaldo þó skrefi á eftir argentíska snillingnum Leo Messi hjá Barcelona. Skemmtilegur munur á tölfræði leiðir þetta í ljós, en með sanni má segja þessir mögnuðu knattspyrnu­menn beri höfuð og herðar yfir alla aðra.

Sjaldgæf og óvenjuleg umfjöllun um fótbolta.

Kerfið - The New Yorker.


Ef þú vilt lesa langar, vel skrif­aðar og ítar­legar greinar um sér­tæk mál­efni, þá er The New Yorker fjöl­mið­ill­inn fyrir þig. Enginn fjöl­mið­ill í heim­inum kemst nærri honum þegar kemur að því að búa til langar greinar, þar sem vand­aður texti er í fyr­ir­rúmi, enda er það sér­staða þessa vand­aða fjöl­mið­ils­ins.

Úttekt Adam Kirsch á Kerfinu, með stóru K-i, er ótrúleg lesning. Í henni er fjallað um nýjar heimildir sem sýna glögglega hvernig vinnu- og fanga­búðir Nasista voru skipulagðar. Ótrúlegt er að hugsa til þess að grimmdin geti verið jafn kerfis­bundin og þarna er lýst.

Áhrifa­ríkur texti um óhuggulega atburði.

Hrun geisladisksins - Vox.


Tón­list­ar­iðn­að­ur­inn er að ganga í gegnum miklar breyt­ingar. Á skömmum tíma hefur sala á geisla­diskum hrunið. Árið 2003 komur meira en 90 pró­sent tekna í tón­list­ar­iðn­að­inum frá sölu á geisla­diskum, en talan var komin niður fyrir 30 pró­sent í fyrra. Árið 1985 komu meira en 55 pró­sent af tekj­unum frá sölu á spólum (cassette).

Saga tónlistar­iðnaðarins, og tekju­skiptingar innan hans, er rakin í einföldu en sniðugu grafi í umfjöllun Vox.

Áhuga­verðar upplýsingar settar fram á einfaldan og aðgengi­legan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár