Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að þeirra mati. Að venju kennir ýmissa grasa á lista dagsins í dag,


  1. Tugir manna létust og hundruð létust eftir að jarð­skjálfti upp á 7,3 reið yfir Nepal í gær. Aðeins rúmar tvær vikur eru síðan enn sterkari jarð­skjálfti varð yfir átta þúsund manns að bana í landinu.

  2. Lest frá Amtrak fór af sporinu í Fíladelfíu í Banda­ríkjunum í gær, með þeim afleiðingum að minnst sex létust. Lestin var á leið frá Washington DC til New York.

  3. Yfirmaður varnar­mála í Norður-Kóreu er sagður hafa verið tekinn af lífi nýlega, fyrir að sýna leið­toganum Kim Jong-un vanvirðingu með því að sofna á viðburði á vegum hersins.

  4. Fjarskipta­fyrirtækið Verizon tilkynnti í gær um yfirtöku á öðru fjarskipta­fyrirtæki, AOL, fyrir 4,4 milljarða dala. Ætlunin er að búa til „næstu kynslóð miðla í gegnum farsíma og myndbönd.“

  5. Einkabréf sem Karl Breta­prins sendi breskum ráðherrum verða gerð opinber í dag, eftir tíu ára deilur um það hvort innihald þeirra eigi að verða opinbert eða ekki.

  6. Veður­stofa Ástralíu spáir því að veður­fyrir­brigðið El Nino myndist síðar á þessu ári, en fyrir­brigðið hækkar hitastig og hefur verið tengt flóðum og þurrkum.

  7. David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, mun í dag kynna nýjar reglur sem eiga að hefta starfsemi samtaka og einstaklinga sem ýta undir herskáa hugmynda­fræði.

  8. Máli gegn forseta Argentínu, Cristinu Fernández de Kirchner, var lokið í gær. Hún var sökuð um að hafa reynt að hylma yfir með Írönum sem voru grunaðir um að hafa skipulagt sprengju­árás á samkomu­stað gyðinga árið 1994.

  9. Haldin var þjóðhátíð í Líberíu og því fagnað að um helgina lýsti Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin því yfir að ríkið væri laust við Ebólu.

  10. Rússar hafa seinkað endurkomu þriggja geimfara úr Alþjóð­legu geim­stöðinni. Þeir áttu að koma heim á fimmtudag en koma ekki heim fyrr en í júní, eftir að mistókst að senda birgðir í stöðina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár