Ekki búið að semja um rekstur hundrað tímabundinna hjúkrunarrýma

Teitur Guðmundsson, framkvæmda­stjóri Heilsu­verndar, stað­festir í samtali við Stundina að ekki sé búið að semja við Heilsu­vernd um rekstur tíma­bundinna hjúkrunar­rýma sem lið í því að létta af álagi Land­spítalans.

„Við erum enn í sömu stöðu, við erum að bíða eftir svari frá Sjúkra­tryggingum Íslands sem eru svo að bíða eftir svörum frá heilbrigðis­ráðuneytinu,“ segir Teitur Guðmundsson, framkvæmda­stjóri Heilsu­verndar, sem er nú eini aðilinn sem stendur til að semja við af hálfu Sjúkra­trygginga um rekstur hjúkrunar­rýma til að létta af álagi á Land­spítalann, en enn er ekki búið að semja um rekstur rýmanna.

Fjölgun hjúkrunarrýma tryggð í fjárlögum

Í fjárlögum fyrir þetta ár var gert ráð fyrir að rúmum milljarði króna yrði varið í að fjölga hjúkrunar­rýmum. „Með þessu viðbótar­fjármagni getum við lyft grettis­taki og fjölgað hjúkrunar­rýmum varanlega þar sem þörfin er mest,“ sagði Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra þann 10. desember 2020 í frétt frá Stjórnar­ráðinu. 

„Gert er ráð fyrir að Sjúkra­tryggingar Íslands geti auglýst eftir húsnæði og rekstrar­aðilum fyrir ný hjúkrunar­rými í samræmi við lög um opinber innkaup fljótlega eftir áramót,“ stóð einnig í fréttinni.

Þann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár